Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 25

Andvari - 01.06.1959, Page 25
ANDVAM BIBLÍAN, KIRKJAN OG VÍSINDIN 23 til þess að benda á þá auðsæju cn sígleymdu staðreynd að það er annað en náttúrufræði. Það er jafnóskylt náttúrufræði og sonnetta eftir Jónas eða fuga eftir Bach. Mannsandinn tjáir sig ekki á einn veg alls staðar. Tjáningu þeirrar skynjunar og túlkun þeirrar vitundar, sem verið er að koma á framfæri í Biblíunni, er fremur að líkja við það, þegar skáldið talar sitt óraunhæfa en djúpvísa mál, en þegar vísindamaður skrásetur raunreyndir náttúrufræðilegra rannsókna. Spámaðurinn innblásni, sem færði í letur óðinn um upphaf heims og manns, sem skráður er á fyrsta blaði Biblíunnar, ætlaði sér ekki og var ekki ætlað að kenna náttúrufræði. En hann segir dálítið mikilvægt og sístætt um það, sem er á bak við náttúruna og líf mannsins. Og það er að minnsta hosti eins fávíslegt að leggja náttúrufræðilegt mat á það, bæði búning og efni, eins og á kvæði Jónasar. Slikt er „metabasis eis allo genos“, eins og Grikkirnir gömlu sögðu, það er að svara ,,í axarskaft". VII. Það var sérstaklega á ofanverðri síðustu öld og í byrjun þessarar aldar, ^ð deilt var um vísindaleg efni af trúarlegum hita. Hitinn í þeim umræðum stafaði í rauninni af því, að tvennum trúarbrögðum lenti saman, ekki trú og visindum. Hvatvísir trúboðar efnishyggju og natúralisma hentu á lofti hverja röksemd, sem þeim virtist hnekkja sannleiksgildi Biblíunnar, og skammsýnir málssvarar trúarinnar létu þá hasla sér völl og skipuðu sér í vonlausri stöðu dl varnar sjónarmiðum, sem voru í rauninni algerlega úrættis og framandi þeim málsstað, sem um var að tefla. Menn eins og Feuerbach, Marx, Comte og Haeckel skírskotuðu óspart til vísindanna um það, að kristin trú færi í öllum efnum með staðleysur og rökkurtilveru hennar væri lokið, þar sem dagur þekkingarinnar væri nú á lofti. Þetta ákafa trúboð í vísindalegu gervi vakti óhollan ugg og tortryggni. Andrúmsloftið var á þessu skeiði illa fallið dl allsgáðra umræðna og þess sér víða vott, ef litið er nú yfir farinn veg. Það sem gerði þróunarkenningu Darwins tortryggilegasta, þegar mest var deilt um hana, var ekki kenningin sjálf út af fyrir sig, heldur liitt, að í nafni hennar toku ýmsir að boða þau trúarbrögð, að maðurinn sé ekkert annað en líffræði- logt afbrigði. Hann á engan æðri uppruna, gegnir engri hærri köllun, lýtur oogum öðrum kvöðum en dýrið, sætir sömu ákvæðum náttúrunnar, hinar gömlu hugmyndir um samvizku, guðsmyndareðli, ábyrgð, eru markleysur. Þetta var í húfi, dýpst skyggnzt, hvort sem menn gerðu sér það fyllilega Ijóst e^a ekki. í rauninni var ekki deilt um visindalegar staðreyndir, heldur um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.