Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1982, Page 34

Andvari - 01.01.1982, Page 34
32 TÖNNES KLEBERG ANDVABI er Gotar fóru herskildi og ránshendi inn í Dónárhéruð heimsveldisins. Þeir brutu á bak aftur varnir þær, er fyrir voru á landamærunum, og sigruðu árið 251 rómverskan her undi stjórn Deciusar keisara, er sjálfur féll. Sextán árum síðar sóttu bandamenn þeirra, Herúlarnir, að Aþenu. Vilctor Rydberg hefur í sínu sígilda fagra kvæði, sem við þekkjum vel, lýst því, hvernig Aþenu var borgið fyrir atbeina sagnaritarans Dexipposar, að því er segir í heimild einni, sem þó verður ekki fulltreyst. En í kjölfar þessara átaka fylgdu, svo sem oft vill verða, menningaráhrif. Rómversk-grísk menning ruddi sér til rúms í landamærahéruðunum meðal þessara aðskotaþjóðflokka. Gotar tóku við kristinni trú, urðu Aríusartrúar. Á miðri 4. öld var Wulfila (gr. Ulfilas) biskup Gota í héruðunum neðarlega við Dóná, þar sem þeir bjuggu um þær mundir, og var hann kallaður postuli Vestgota. Wulfila var ekki hreinræktaður Goti, því að móðurforeldrar hans munu hafa verið kristnir stríðsfangar frá Kappadokíu. Biskup vann það afrek að snúa biblíunni á móðurmál sitt. Til grundvallar var hinn gríski texti í býzanskri gerð sinni. Hér var heilög ritning fyrst þýdd á germanska tungu. Ætla verður, að þarna hafi orðið til nýtt ritmál undir bandarjaðri Wulfila og hann skipað sér þar með á stall við sjálfan höfuðinnganginn að sögu bókmennta á germönskum tungum. Við ritun biblíuþýðingarinnar notar hann stafróf, sem gera verður ráð fyrir, að sniðið sé að mestu eftir gríska stafrófinu, en lagað að hinu þjóðlega gotneska rúnaletri. Biblíuþýðing Wulfila er merkilegur áfangi í evrópskri menningarsögu. Einungis nokkur brot stórvirkis hans hafa varðveitzt síðari kynslóðum. Codex Argenteus er það handrit, sem geymir stærstu og afdráttarlaust merk- ustu hluta verks hans, langa kafla úr guðspjöllunum fjórum. Það er fremsti miðill þessa arfs frá því á fornöld Germana og helzti grundvöllur þekkingar okkar á elztu sögu germanskra tungna. Wulfila dó á gamals aldri árið 383. Rúmri öld síðar réðst höfðingi Austgota, Þiðrekur, - í rauninni að ráði austrómverska keisarans og sem hershöfðingi hans, - inn í Italíu með mestöllum flokki sínum. Hann sigraði árið 493 Germanahöfðingjann Odovakar, sem gerzt hafði fyrirliði vest- rómverska ríkisins. Þiðrekur lét gefa sér konungsnafn og stofnaði veldi, er tók yfir alla Italíu. Verona og Ravenna voru aðsetursstaðir konungs. Frægð hans fór víða, sagnir af Þiðreki af Bern (Verona) báru nafn hans allt til Norðurlanda. Þiðrekur var slyngur stjórnmálamaður. Þegnar hans voru um- burðarlyndir. Germanirnir höfðu flestir telcið kristna trú, voru Aríusartrúar, en rómverski þjóðarhlutinn hélt hinni strangari trúarstefnu. Hér reyndist rúm fyrir báða. Listir og bókmenntir blómguðust. Fornmenningin lifði aftur sitt síðsumarskeið. Austgotaríkið á Italíu var kristið. Menning þess var að mestu með rómverskum og býzönskum brag. En biblíuþýðing Vestgotans Wulfila var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.