Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1982, Side 69

Andvari - 01.01.1982, Side 69
ANDVARI „FEL EI LÝSIGULLIÐ GÓÐA“ 67 um mig fyrir annað hvort að hafa stangað sína kreddu eða kreddu óvinarins, þegar ég veit sjálfur, að það sem varð mér yrkisefni voru algengar anda-stefnur einhvers flokks úti á víðrar veraldar vegum, straumar úti á Rússlandi eða stríð í Transvaal. En að sér getur Islendingurinn hvorugt það tekið, því þar var hann ekki við yrkisefni staddur. En ,,móðins“ prestur í „Á ferð og flugi“ er náttúrlega séra Friðrik, og ,,I páfagarði“ kveðið um séra Jón. Þó man ég ekki til, að ég hvarflaði hug til séra Friðriks sunnudagana, sem ég sat einn uppi í gamla skólahúsinu og rubbaði upp ,,Á ferð og flugi“. Og hitt man ég upp á hár, að ,,I páfagarði“ kvað ég upp úr miklum blaðalestri út af viðureign páfans, sem nú er, og modernistanna.“ „Það er einhver sannleiks mynd þó í þessu handahófshrafli mínu, fyrst menn kannast þar við sig eða aðra, á sama hátt eins og ef ég drægi upp úr mér mynd af jökli, og svo sæi Skagfirðingur og segði það vera mynd af Hofs- jökli, en Hindúi væri jafnviss á, að þarna hefði hann fyrir sér einhvern hjall- ann í Himalayafjöllunum sínum. Ekki svo að skilja, ég fer sízt að bera af mér, að ég hafi kveðið kvæði í garð íslenzkra flokka og einstakra manna: „Kritik“, „Prófasturinn“, „Snækollur”. Nei, hamingjan forði mér.“ Þegar séð varð, að Andvökum, öllum þremur bindunum, hafði reitt vel af, gerir Stephan sjálfan sig upp á þennan veg í bréfi til Eggerts Jóhannssonar 21. marz 1911: „Eg veit ekki, Eggert minn, á hvaða andlegu reki ég er. Eins víst, að ég „betri mig ekki“ úr þessu, þó ég leggi ekki árar í bát, sem kannske væri bezt. Að ,,forminu“ til er ég kannske leiknastur nú. Sumt annað kann að fara að dofna. Hjáverkaþol mitt er frá, það er víst, og yrkisefni geymast mér miður en áður óunnin í huganum, þangað til tómstund kæmi. Hillingarnar, sem þau koma til manns í, hverfa nú fljótar. Þegar ég nefni annríki mitt, er það í því skvni, að ég er að afsaka vansmíðar á því, sem ég vinn, fremur en telja mér raun að þurfa að vinna, því ég met það ekki svo. Auðs eða góðra daga vænti ég mér ekki. Sé ég eitthvað utan við mig og æski mér sjálfum nokkurs, þá er það aðeins eitt: hvíld.“ Það er naumast nema von, að Stephan væri ögn þreyttur eftir þessa löngu lotu, fyrst að fara yfir allar ljóðasyrpurnar, laga sumt og fella annað frá, flokka kvæðin eftir efni og síðan raða þeim eftir aldri innan hvers flokks, en sá siður Stephans að ársetja svo að segja hvaðeina reynist ómetanlegur, þegar átta skal sig á kvcðskaparferli hans. Öllu þessu starfi fylgdi svo eftirvæntingin um, hvernig útgáfunni yrði tekið bæði austan hafs og vestan. Þótt Stephan þrái í svipinn hvíld, ætlar hann sér ekki að leggja árar í bát, eins og hann orðar það, og finnst hann vera að ,,forminu“ til leiknastur nú. í kvæði, sem hann birtir haustið 1912 og nefnir Dægradvöl, er sem hann líti
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.