Andvari - 01.01.1982, Side 80
78
BERGSTEINN JÓNSSON
ANDVARI
systkin }ón heit. Sigurðsson, Jens heit.
og Margrét 13 hdr. að fornu mati í
Arnardal, og höfðu þeir bræðurnir jafn-
an látið systur sína, sem er fátæk ekkja
í Arnarfirði, fá allt afgjaldið.3 Jón heit-
inn hafði mig síðustu árin fyrir um-
boðsmann og hafði sagt mér að senda
Margréti allt afgjaldið. Það gjörði eg og
í fyrra, af því eg enga nýja vísbendingu
hafði fengið frá erfingjum fens eða búi
fóns, enda veit eg ekkert enn hvað mikið
hvort þeirra syskina á í jörðinni, hvort
þeir bræður hafa gefið Margrétu af-
gjaldið af sínum hluta, eða með því
verið að innleysa hennar hluta. í einu
bréfi til mín, 1878, nefnir Jón sál.
Arnardal „sameiginlega eign“ þeirra
syskina. A 6 hundruðum jarðarinnar
urðu ábúenda skipti í fyrra, og byggði
eg þau á ný að eins til eins árs, til þess
að þau, ef seld yrðu, eigi félli í verði
vegna leigumátans. Við úttektina keypti
eg fyrir 140 kr. (sem eg borgaði af af-
gjaldinu) nokkuð af húsum fráfaranda,
svo jarðarpartinum fylgja nú miklu betri
hús en áðr, og þaraðauki liggr nú sá
partr túnsins, sem partinum fylgir, sam-
an í heild sér, er áðr var í mörgum
smápörtum víðsvegar, svo hann er nú
miklu aðgengilegri en áðr. Eg hefi endr-
nýað bygginguna á 6 hdr. fyrir næsta
fardagaár. Afgjaldið af 13 hdr. er, eptir
fiskverði 190-280 kr. á ári brúttó. - Eg
hefi heyrt að þér hafið helztu umsjónina
með búi fóns sál. og því skrifa eg yðr
þetta og leyfi mér að biðja yðr við tæki-
færi láta mig vita, hvort eg eigi ekki,
þangað til skiptaréttrinn eða aðrir réttir
viðkomendur ráðstafa á annan veg, að
láta Mdme Margrétu fá allt afgjaldið
eins og hingað til - til að selja jörðina
álít eg nú tímann óhentugan, því hér
árar illa; slíkt er bezt í eða eptir gott
fiskiár.
Bið eg yðr svo fyrirgefa ónæði það,
er eg gjöri yðr með þessu bréfi, og rita
undir það
með mestu virðingu
Þorvaldr fónsson.
Vorið 1881 hefur Tryggvi komið við
á Isafirði á leið sinni til Alþingis, en í
bréfi frá 16. júlí kvartar Þorvaldur und-
an því, að viðstaða „Waldemars“4 hafi
verið svo stutt, að hann hafi ekki fengið
„tíma til að tala við yðr um helming
þess, er eg hafði ætlað mér.“ En það eru
launakjör lækna, nánar tiltekið launa-
uppbót „fyrir okkur gömlu lækn-
ana . . .“ sem hann ber einkum fyrir
brjósti. Verður ekki nánar að því vikið
hér.r>
Enn er Þorvaldur læknir á ferðinni
28. febrúar 1882. Má einnig taka það
bréf til dæmis um sameiginleg áhuga-
mál og viðfangsefni þessara pennavina,
og auk þess um viðfangsefni héraðs-
læknisins.
Sem gjaldkera Elafnardeildar bók-
menntafélagsins0 sendi eg yðr hérmeð
ávísun á 400 kr. upp í tillög og seldar
bækur fyrir deildina. Reikning get eg
eigi sent nú, því eg þekki eigi verð
sumra bókanna 1881, og hefi engan
reikning fengið frá bókaverði hennar
síðan 1879. Aptramóti læt eg fylgja
skýrslu um goldin tillög 1881, sem eg
bið yðr afhenda forseta.
Sem forseta Þjóðvinafélagsins get eg
glatt yðr með því, að félagar hjá mér
eru orðnir 104, og að eg er búinn að
senda gjaldkera þess í Reykjavík 211 kr.
auk rúmra 40 kr., er hafði greitt um
of í fyrra; en af hinum eldri bókum
félagsins og félagsritunum hefi eg enn
ekkert getað selt.
Af Magazíninu, sem þér senduð mér
til útsölu í fyrra, hefir lítið sem ekkert
selzt, því markaðrinn var búinn að