Andvari - 01.01.1982, Blaðsíða 81
ANDVARI
EKKJAN í IIOKINSDAL
79
byrgja [sic] sig með því árið áðr, því
það er þér síðast senduð, var sami
árgangrinn og sá, er eg seldi fyrir yðr
1880.
Eg sendi launamál mitt (fyrir 5. hér-
aðið),7 eins og við töluðum um í haust,
til álita hæstaréttaradvokats, og ræðr
hann mér frá að fara í mál, vegna laga-
bókstafsins, og er eg því hættr við að
fara lengra út í það, þó hart sé fyrir
mig að missa bæði það og launahækk-
una (sic), sem mér ber eptir öllum
mannúðlegum rétti og sanngirni, og sem
allir eldri embættismenn landsins hafa
fengið, nema við þessir 5 fátæku læknar;
en nú lítr út fyrir, að það sé að eins
biskup, kanselíráð og ríkir menn, sem
fjárveitingarvald vort setr á hné sér og
gefr ábæti, enda þó þeir eigi biðji eða
sýnist eigi hafa neinn sanngirnisrétt eða
lagalegan til hans. -
Konan mín liggr enn,8 og sjást enn
engin merki þess, að henni ætli að fara
að batna bráðlega; og þjáningarnar eru
orðnar lítt bærar, og kraptarnir litlir.
Það hefir verið og er leiðr og langr tími
þetta, síðan snemma í júlí, bæði fyrir
hana og okkur hin á heimilinu - og
óbeinlínis er hann orðinn mér mjög
dýr. -
Engin skeyti hefi eg enn fengið frá
yðr né öðrum um Arnardalshundruðin
framvegis, en afgjaldið 1881 fékk
Mdme Margrét allt, eins og þér sögðuð
fyrir, og var það: vertollar 111,09 kr.
(varíerar eptir fiskverði) og leigur og
landskuld 135,35 kr., eða alls brúttó
246,44 kr. af þeim 13 hdr. þeirra sysk-
ina. Eg bið yðr láta mig vita með fyrstu
ferð, hvort þér ætlizt til að eg hafi
nokkur afskipti af hundruðunum á
þessu ári, og hvort afgjaldið á að fara
til Margrétar allt, eins og áðr.
Eg man þá eigi fleira, er eg þurfi á
að minnast við yðr í þetta sinn, og
kveð yðr því mínum beztu kveðjum,
og óska að mega eiga yðr að, ef á liggr
fyrir mér, sem hæglega getr komið fyrir.
Yðar skuldbundinn vinr
Þorvaldr Jónsson
Hinn 1. ágúst 1882 situr ekkjan í
Hokinsdal í fyrirrúmi í skrifi Þorvalds
læknis til Tryggva. En auk þess er nýtt
mál komið upp á skörina: Tryggvi hef-
ur stofnað til niðursuðu á Oddeyri, upp-
haflega einkum miðaða við útflutning.
En er sá markaður brást að mestu eða
öllu, var reynt að róa á íslenzk mið og
einkum reynt fyrir sér meðal þeirra,
sem þurftu að sjá fiskimönnum fyrir
kosti.
Ekkjan í Hokinsdal vill kaupa parta
beggja dánarbúanna, bræðra sinna, úr
Arnardalnum, ef hún fær hundraðið á
400 kr.,eins og þérbuðuð henni2% hdr.
af Arnardalshúsunum ytri fyrir, eða þessi
8% hdr. fyrir 3466,67 kr., eða allt að
3500 kr., en 3700 kr. máttu þau fara
fyrir til annara, eptir því sem þér sögðuð
fyrir, en þá bjóst eg ekki við, að hún,
sem þér vilduð láta ganga fyrir með
kaupið og fá betri kjör, gæti eða vildi
kaupa. Eg á að vera umboðsmaður
hennar með kaupin, og borgunin skal
verða greidd í haust með 1 mán. ávísun,
öll í einu. En hún óskar að fá afsals-
bréfið sem fyrst, því hún verðr líklega
að selja nokkuð af jörðinni strax í vetr
aptr. Vil eg mæla með því að þér seljið
henni og sem billegast, því hún hefir
hag af því að kaupa nú. Eg vil nú
biðja yðr með fyrstu ferð, helzt með
„Valdemar", láta mig vita, 1) hvað hún
fær þessi 8% hdr. úr Arnardalnum fyrir;
2) hvað mikið hún á til góða ytra;9
3) hvenær ávísanin þarf að vera komin
til Hafnar; 4) hvenær hún getr fengið