Andvari - 01.01.1982, Side 82
80
BERGSTEINN JÓNSSON
ANDVARI
afsalsbréfið; 5) hvort ávísanin má eigi
stýlast til yðar og hvenær þér komið til
Hafnar í haust; 6) hve mikið eg má
reikna mér í ómakslaun af afgjaldinu í
ár, auk útlagðs kostnaðar við sendiferð
vestr; afgjaldið verðr líklega yfir 300 kr.
í ár, eða yfir 200 til dánarbúanna.
Gljúfránni verðr lakara að fá kaup-
anda að; jörðin kvað vera að skemmast,
og er illa setin. Á Madame Margrét að
fá afgjaldið af henni í ár, eða á ekki
að útvega umboðsmann annan til að sjá
um hana? Eg skal taka það að mér
sjálfr eða útvega annan, ef eg fæ til
þess fullmakt.
Auk þeirra niðursoðnu rétta, er þér
skrifuðuð hjá yðr að þér skylduð senda
mér, vil eg enn mega biðja yðr um
25 dósir af „frikasse", og svo láta mig
vita hvað það kostar allt saman. Eg
fékk 10 dósir hjá ]óni heitnum Sturlu-
syni,10 en 2, sem þér sögðust hafa sent
dreng með til mín, hafa ekki komið
fram, þrátt fyrir rannsóknir ]óns St. og
mínar. Vonandi að einhver fátækr hafi
notið þeirra.
Konan mín fer nú til Hafnar . . . með
„Arktúrusi“,n og verðr ytra í vetr.
Lánar frú Sigríðr Ásgeirsson12 mér
peninga til þess, og fleiri hafa lánað
mér og styrkt í vandræðum mínum í ár,
svo eg vona að komast af nokkurnveg-
inn í vetr - en gangi menn hart að
mér, einkum lyfsalarnir, þá veit eg ekki
hvernig fer - og þá sný eg mér til yðar
og annara, sem hafa góðan vilja og
mátt og halda að óhætt sé enn að lána
mér . . .
Þá er loksins þar komið, að rödd
Tryggva heyrist í þessu tveggja manna
tali, sem hirðusemi Tryggva gerir nú-
lifandi fólki kleift að hnýsast í. Bréf
hans sjálfs eru varðveitt í kópíubók-
um hans, og hefur afritunin ekki ævin-
lega tekizt sem skyldi. T. d. er hluti
af bréfi hans frá 6. sept. 1882 ólæsi-
legur, þ. á m. fyrstu sjö línurnar. Síðan
segir m.a.:
. .. Mikill dugnaðarmaður eruð þjer
að vera búin að koma í kring Arnar-
dalskaupunum innanum allt anríkið og
veikindin. -
1. Þegar jeg sagði að jeg vildi láta
jörðina ódýrari ef ekkjan Margrjet Sig-
urðardóttir keypti hana, heldur en ef
einhver annar gjörði það, þá átti jeg við
það, að hún keypti jörðina til eignar,
en ekki til að selja öðrum, en eftir
málavöxtum vil jeg samþykkja að þjer
seljið henni þennan jarðarpart . . . fyrir
3500 kr„ móti því að verð jarðarinnar
sje borgað strax, sem þjer segið að hún
eigi hægt með.
2. Jeg held ekkjan eigi nálægt 600 kr.
í Kpmh. Sje það minna skal jeg í bráð
lána það sem ávantar, en sje það meira
skal jeg senda henni afganginn. 3. Best
er að ávísanin upp á jarðarverðið væri
komin til Kpmh. seint í Oktober ekki
með lengra sigt en 1 mán.,13 stíluð á
mitt nafn og geymd hjá hr. Hjálmar
Johnsen14 eða öðrum vissum manni, skal
jeg þá gjöra mitt til að fá samþykki
skiptarjettarins og sjá um að kaupbrjef
verði sent frá Kpmh . . . en gangi kaup-
in til baka, sem jeg vona að ekki verði,
þá skal jeg sjá um að ávísanin eða and-
virði hennar komist hið fyrsta til eig-
andans. 4. Jeg vil að þjer takið full-
komlega fyrir kostnað yðar og fyrir-
höfn, bæði við umsjón jarðanna og sölu
þeirra; mjer finnst ekki ofmikið að þjer
takið eptirgjaldið af Arnardal þetta ár
þegar litið er til fyrirhafnar og um-
sjónar yðar á jörðunum nú í ár og fyrir-
farandi ár, en eptirgjaldið af Gljúfrá bið
jeg yður að geyma þar til því er ráð-
stafað síðar. -