Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1982, Page 94

Andvari - 01.01.1982, Page 94
92 LGFTUR GUTTORMSSON ANDVARI Málsvörn byltingarmanns. Þess var ekki langt að bíða að hinn enski frömuður íhaldsstefnunnar eign- aðist andmælendur. Enginn varð honum jafnskæður og Thomas Paine. Paine var enskur að uppruna, en hafði flust vestur um haf rétt áður en nýlendubúar risu upp gegn ensku krúnunni. Hann hafði getið sér góðan orðstír vestra sem höfundur róttækra bæklinga, m.a. um byltingarhernað. Aðeins þremur mánuðum eftir að Hugleiðingar Burkes komu út birti Paine svar við þeim undir titlinum Mannréttindi. Bókin var tileinkuð Georg Washington, forseta Bandaríkjanna. I formála skrifaði höfundur bitur og vonsvikinn: „Varla er til það skammaryrði í enskri tungu sem herra Burke hefur ekki grafið upp til að hreyta í frönsku þjóðina og þjóðsamkomuna . . . Miðað við þá afstöðu sem hann tók til amerísku byltingarinnar var eðlilegt að ég teldi hann vin mannkynsins; og þar sem kunningsskapur okkar hófst á þeim grunni hefði ég kosið heldur að mega vera áfram þeirrar skoð- unar en þurfa að breyta henni.“14 Paine reyndist enginn eftirbátur fyrrverandi vinar síns í stóryrtum áfellis- dómum. Um ástæðurnar fyrir hinum hlýju móttökum sem Hugleiðingarnar höfðu hlotið hjá aðalsmönnum Evrópu fórust honum m.a. svo orð: „Hann skrifar hvorki að hætti Frakka né Englendings, heldur að hætti þess smjaðurslega skapnaðar sem þekktur er um öll lönd og er einskis manns vinur, hirðmannsins. Hvort hirðin heitir Versalir, St. James eða Carlton House eða eitthvað annað skiptir ekki máli; því ránseðli allra hirða og hirðmanna er samt við sig. Þær framfylgja sömu stefnu um alla Evrópu sem fer í engu eftir hagsmunum þjóðanna; og meðan þær sýnast vera að deila eru þær ásáttar um að ræna. Af engu getur hirð eða hirðmanni stafað meiri skelfing en af frönsku byltingunni. Það sem er til blessunar þjóðunum er hirðunum til hrellingar.“ir’ Rit Thomas Paines var skelegg málsvörn fyrir frönsku byltinguna. Lofsöng Burkes um hirðina í Versölum svaraði hann eftirminnilegum orðum: ,,Hann aumkast yfir fiðrið, en gleymir deyjandi fuglinum.“111 En gegn sjálfum kjarn- anum í kenningu andstæðings síns, þ.e. að hver núlifandi kynslóð sé á marg- víslegan hátt bundin hefðum og fordæmum forfeðranna, hélt Paine fram kröfunni um þjóðarfullveldi sem franska byltingin hafði borið fram til sigurs: „Hverri öld og hverri kynslóð hlýtur að vera frjálst að aðhafast í eigin þágu, í öllum tilvikum, eins og aldirnar og kynslóðirnar sem á undan gengu. Sá hrokagikksháttur að stjórna handan grafar og dauða er hlá- legasta og svívirðilegasta harðstjórn sem um getur. Einn maður á engan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.