Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1982, Page 98

Andvari - 01.01.1982, Page 98
96 LOFTUR G UTTORMSSON ANDVARl einkanlega borin uppi af verka- og handverksmönnum. Helsta driffjöðurin var Bréfaskiptafélagið í Lundúnum - London Corresponding Society — fyrstu stjórnmálasamtök verkamanna sem um getur. Það var stofnað af skoskum skósmið, Thomas Hardy, í ársbyrjun 1792. Að tilhlutan hans voru stofnuð systurfélög í Sheffield, Nottingham og mörgum öðrum borgum lands- ins. Félagið hafði einkum á stefnuskrá sinni að berjast fyrir almennum kosn- ingarrétti og réttlátari kjördæmaskipan. Félagslegar umbætur voru líka ofarlega á stefnuskrá þess eins og marka má af eftirfarandi svari sem verkamaður einn í Sheffield gaf við spurningunni um hvert væri markmið félagsins þar: ,,Upp- lýsa alþýðuna, sýna alþýðunni fram á ástæður og orsakir þjáninga hennar og rauna; hvers vegna manni sem vinnur baki brotnu þrettán eða fjórtán stundir á dag tekst samt ekki að framfleyta fjölskyldu sinni.“2- Bréfaskiptafélagið var m.ö.o. miðdepill róttækrar umbótabaráttu á landsmælikvarða. Skæðasta vopn þess var hið vígreifa rit Thomas Paines sem áður getur. Sjálfur var Paine félagi í svokölluðu Stjórnarskrárfélagi er laut forystu róttækra whigga- borgara. Deildir þess störfuðu í öllum helstu borgum Englands og meðal verkefna var að safna stígvélum og öðrum búnaði handa franska bvltingar- hernum. Fjölmörg umbótafélög önnur lögðu hönd á plóg ,,jakóbínismans“, en svo kölluðu andstæðingarnir hreyfinguna í óvirðingarskyni. Hún hefði tvímælalaust notið meira fylgis ef hún hefði ekki rekist á hleypidóma sem voru rótgrónir meðal bresks almennings í garð Frakka og annarra megin- landsbúa; á teiknimyndum samtímans voru þeir sýndir grindhoraðir af sulti við hliðina á hinum mjög svo þriflega John Bull. Samstaða byltingarajlanna. Að sjálfsögðu var öll þessi ólga sem ýmist kraumaði eða gaus upp um vestanverða Evrópu sprottin af margvíslegum staðbundnum aðstæðum. Engum gat þó blandast hugur um að hún var að miklu leyti brennd marki frönsku byltingarinnar. Hún beindist hvarvetna gegn sömu þjóðfélagsöflunum, veldi prinsa, forréttindastétta og fylgifiska þeirra meðal auðugra borgara. Eftir því sem byltingin smitaði meira út frá sér varð hinum upplýstu mönnum, sem höfðu í hálfgerðu hrekkleysi fagnað „falli harðstjórnarinnar“, æ betur ljóst að hún táknaði ekki einasta upprisu ójarðneskrar frelsissólar; þeir sáu að franska byltingin gerðist miklu nærgöngulli við sjálfan þjóðfélagslíkamann en kynsystir hennar, ameríska byltingin. Franska byltingin táknaði m.a. róttæka röskun eignarréttar - þótt hún hefði lýst hann friðhelgan í upp- hafi - allsherjar upptöku kirkjugóss og brátt seildist hún í eignir þeirra aðalsmanna sem stukku í útlegð norður eða austur á bóginn. Alvarlegast var þó að byltingin virtist ekki ætla að virða nein landamörk. Var ekki tími til þess kominn fyrir upplýsta menn að endurskoða afstöðu sína? Þýsku prins-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.