Andvari - 01.01.1982, Blaðsíða 109
ANDVARI
AFAMINNING
107
lífið. Var því ekki seinna vænna að breyta til og sækja um brauð. En hér kom
líka annað til: Jón hafði þegar sér konu festa, eins og sjá má af eftirfarandi
bréfi hans til E. Briem sýslumanns á Espihóli.
Bónorð og gifting.
Laugarnesi, d. 14. september 1855.
Elskulegi herra sýslumaður.
Þótt ég sé yður að mestu eður öllu ókunnugur, finn ég það þó skyldu
mína að skrifa yður, þar sem ég býst við, að Sigríður mágkona yðar muni
vera búin að segja yður frá því tryggðabandi, sem við höfum bundið okkar í
milli í von um yðar góða samþykki, því það játa ég og á að játa, að það átti
engan veginn að fullgjörast nema með yðar ljúfum vilja, sem hafið gengið henni
í föður stað. En fyrst þetta er nú svo komið, sem ég vona að sé eftir Guðs
góðum vilja, vona ég og einnig, að þið góðu hjón gefið okkur blessun yðar, því
fremur sem móðir hennar er búin að gefa sitt samþykki til þessa ráðahags,1 og í
þeirri von legg ég hér innaní bréf til Sigríðar minnar, en bið yður undir eins
að fyrirgefa mér þá dirfsku að brúka yður þannig eins og bréfbera, en af því
við viljum ekki, að bréf okkar flækist manna milli, verð ég þó að biðja yður
að lofa mér framvegis að slá utan um bréf hennar til yðar. Ég vil ekki að
þessu sinni vera langorður um þetta málefni hjarta míns, en fel það Guði og
ykkur góðu hjónum og er alla tíma með ást og virðingu ykkar skuldbundinn
þénari.
Jón Þórðarson.
Enda þótt ekki sé nú til svar sýslumanns við þessu bréfi Jóns Þórðarsonar,
þarf naumast að draga það í efa, að sýslumannshjónin hafa beinlínis fagnað
slíku bónorði f. h. Sigríðar. Jón hafði orð á sér sem reglusamur hæfileika-
maður, líklegur til frama í sinni stétt og viss með að fá gott brauð eins og
áður er rakið með veitingu hans fyrir Auðkúlu, þangað sem hann var vígður
25. maí 1856. Voru vígslubræður hans: Skúli Gíslason til Stóra-Núps (síðar á
Breiðabólstað) og Jón Melsted til Klausturhóla. Sr. Jón fluttist síðan norður
um vorið með þrem hjúum og tók við stað og kalli í fardögum. Þegar leið að
hausti, hélt hann til Eyjafjarðar. Stóð brúðkaup þeirra Sigríðar á Espihóli 2.
september 1856. Svaramaður hennar var Briem sýslumaður, en hans sr.
Einar Thorlacius í Saurbæ.
Óvíst er, hvort þau hafi þekkzt persónulega, sr. Jón og Sigríður, áður en
þau gengu í hjónaband. En vitað hafa þau hvort af öðru, enda var Sigríður
systurdóttir Vilborgar stjúpu hans, en bréf hafa farið milli þeirra. Sigríður
var fædd 8. febrúar 1830. Eftir lát föður síns, Eiríks Sverrissens sýslumanns
í Kollabæ, var hún fyrst með móður sinni, en fluttist árið 1845 með Ingibjörgu
1) Kristín, móðir Sigríðar, var iþá á Reynivöllum í Kjós hjá Guðlaugu dóttur sinni.