Andvari - 01.01.1982, Qupperneq 127
ANDVARI
AFAMINNING
125
stundum á vetrum tekið heyin niður að tóptarveggjum. Húsin leika á reiði-
skjálfi, svo maður getur ekki sofnað nema millum vonar og ótta. Þetta gerir
Svínadalsfjallið okkar, sem sr. Sigurður sál. sagði að væri þarfaverk að mokað
væri ofan í Svínavatn. . . .
Fyrirgefðu miðann og vertu með konu þinni af okkur öllum kærast kvadd-
ur með óskum allra blessunar og farsældar.
Þinn elskandi bróðir,
Jón Þórðarson.“
Heilsufar - ævilok.
Eftir tæpan áratug á Kúlu fer sr. Jón að tala um heilsuleysi í bréfum sín-
um til Jóns Árnasonar. Það byrjar með hæsi, sem „mun vera undanfari
brjóstveiki, sem liggur í ætt vorri.“ Reyndist hann sannspár í því efni, því
uppfrá þessu var sr. Jón afar veill fyrir brjósti, þoldi illa ferðalög og alla úti-
vist í kulda. Þó bráir jafnan af honum, þegar hlýna tekur og kveðst þá vona,
að hann nái sér nokkurnveginn að sumrinu. Hann verður að fara mjög var-
lega með sig, ekki koma út í kulda og gæta sín með mataræði. Það reyndist
gagnslaust að leita langt eftir meðölum og læknisráðum. Hér sem oftar reyndist
hollur heimafenginn baggi. Sr. Jón klæðir af sér brjóstkuldann með gæru-
skinnsvesti, og af grasagrautnum verður honum mjög gott og etur sig dag-
lega mettan af honum. En hver vetur verður honum erfið raun. „Ég er alltaf
fullur af kvefi, sleni og hósta,“ skrifar hann 16. febrúar ’81, ,,enda er brjóst
mitt veikt fyrir slíku.“ - í bréfum sínum seinustu fjögur árin skrifar sr. Jón
lítið um heilsufar sitt. Mætti af því ráða, að þá hafi því ekki hrakað mjög. Hins
vegar var heilsu hans svo farið, að lítið þurfti út af að bera og ekki mátti
hann við neinum áföllum. Vorið 1885 fékk hann lungnabólgu, sem dró hann
til dauða. Bar andlát hans að 13. júní. Þess minnist sá, sem þetta ritar, að hafa
heyrt Guðnýju móður sína segja, að ekki hafi náðst til læknis, þegar faðir
hennar lézt. Útför sr. Jóns fór fram 6. júlí. Á legsteini hans í Auðkúlukirkju-
garði er þessi áletrun:
Jón Þórðarson, prófastur.
1826-1885.
Vígður að Auðkúlu 1856.
Sóknarbörn hans reistu honum stein þennan 1891.
i'IELZTU HEIMILDIR:
Brcf sr. Jóns Þórðarsonar í handritadeild Landsbókasafns.
Bréfabækur biskups.
Bréf til biskups frá prestum og leikmönnum í Húnavatnsprófastsdæmi 1856-1885.
Ævisaga (vita) Jóns Þórðarsonar (þýðing Jóns Sveinbjörnssonar próf.).
Prestaævir Sighv. Gr. Borgfirðings.
Kirkjubækur Garða á Alftanesi, Auðkúlu, Grundarþinga, o. fl.
Um börn og aðra afkomendur prófastshjónanna á Auðkúlu sjá: Oskar Einarsson:
Staðarbræður og Skarðssystur. Niðjatal. Rvík 1953.