Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2000, Page 154

Andvari - 01.01.2000, Page 154
152 ÞÓRIR ÓSKARSSON ANDVARI drukknaði og lítill drengur þurfti að yfirgefa móður sína og systkini og halda burt úr Öxnadalnum: «1 einni svipan er höggvið á rætur hans og hörð lífsbaráttan tekur við», segir Páll (15). Einhverjir lesenda kynnu jafnvel að draga þá ályktun að skáldskapur Jónasar hafi að hluta til verið «söknuður og þrá útlagans eftir glötuðum sæludal bernskunnar», - enda fara þau orð ekki langt frá velþekktri skilgreiningu þýska skáldsins Schillers á tilfinn- ingasömum skáldskap samtímans («die sentimentalische Dichtung»). í skrifum sínum um Jónas gengur Svava Jakobsdóttir að mörgu leyti þvert gegn því viðhorfi að læsa ævi og verk skáldsins saman á þennan hátt. Það er varla fullkomin tilviljun að viðfangsefni hennar eru þrjú þeirra rit- verka Jónasar sem oft hafa verið túlkuð sem ævisögulegar heimildir um skáldið sjálft: smásagan «Grasaferð» og ljóðin «Alsnjóa» og «Ferðalok». Svava dregur að vísu ekki í efa að kjarninn í þessum skáldverkum sé «per- sónuleg reynsla» Jónasar (178). Þau séu eiginlegur «lífsóður» hans (272), tjái hugmyndir hans um lífið og tilveruna. Hún leggur hins vegar á það ríka áherslu að uppspretta þessara bókmennta sé «orðið og tungumálið» (108). I riti hennar situr skáldskapurinn og hið táknræna í verkum Jónasar þess vegna ævinlega í fyrirrúmi og skyggir verulega á ævisögulega þætti. I greininni um «Ferðalok» hafnar Svava t. d. þeirri gamalkunnu túlkun að uppistaða kvæðisins sé alþekkt ástarsaga Jónasar og Þóru Gunnars- dóttur frá sumrinu 1828, skoðun sem Matthías Þórðarson varð fyrstur til að halda fram í grein frá 1925 og síðar í útgáfu sinni á verkum Jónasar frá 1929-37.7 Þessa sögu rekur Páll Valsson einnig í bók sinni. Að vísu tekur hann frásögninni um «ástarsamband» þeirra Jónasar og Þóru með hæfileg- um fyrirvara, enda sé hún reist á óljósum upplýsingum ættuðum frá hálf- systur Þóru tæpri öld síðar. Hins vegar telur Páll trúlegt að Jónas hafi breytt «minningum sínum» um sumarferðina með Þóru «í glæsilegt kvæði um ástina» (42). Svava gengur aftur á móti svo langt að fullyrða að frá- sögnin um Þóru hafi það markmið að skýra hugmyndir síðari tíma fræði- manna um hugarástand Jónasar þegar hann orti kvæðið, enda beri hún þess merki að vera «veraldleg útlegging á goðsagnakenndu skáldskaparmáli» (271). Astarsagan sé með öðrum orðum byggð á kvæðinu og túlkunum þess, en ekki kvæðið á ástarsögunni. Þetta dæmi sýnir að margt kann að orka tvímælis í lífi og list Jónasar Hallgrímssonar, enda kannski engin furða myndu margir segja, þegar haft er í huga að hann var skáld tvísæisins. Meginmarkmið Svövu Jakobsdóttur með bók sinni er einmitt að skyggnast á bak við skýin sem leika um verk hans, «að lyfta hulunni af textanum og skoða efnið sem undir býr» (10), bæði túlka flókið og fjölbreytilegt táknmál skáldsins og vekja athygli á ferðalagi þess milli hins náttúrulega og yfirnáttúrulega. Með það í huga þarf hún sjálf reyndar að leggjast í langt og strangt ferðalag um völundar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.