Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2000, Page 155

Andvari - 01.01.2000, Page 155
ANDVARI SKÁLDSKAPUR OG SAGA 153 hús evrópskra bókmennta og goðsagna að fornu og nýju. Ef til vill munu einhverjir segja að þar sé módernistinn og skáldið Svava Jakobsdóttir á heimavelli, enda njóta skyggnigáfa hennar og frumleiki sín vel. Hitt dylst samt ekki hversu vel lesin Svava er í rómantískum skáldskaparfræðum og þeirri heimspeki sem kennd er við þá stefnu. Að hætti margra bókmenntafræðinga 20. aldar, m. a. þeirra sem aðhyll- ast nýrýni, lítur Svava svo á að allur góður skáldskapur sé í eðli sínu erfiður vegna þess hve hlaðinn merkingu hann er. Af þessum sökum telur hún Iíka að verk Jónasar Hallgrímssonar krefjist «sérstaks lesháttar» (247), og sjálf lýsir hún í inngangsorðum sínum hvernig beri að nálgast þau (10). Ljóst virðist að ritskýring hennar byggist að hluta til á þeirri túlkunaraðferð sem guðfræðingar hafa beitt frá alda öðli, þ. e. að leggja textana út orð fyrir orð og setningu fyrir setningu og benda á hvernig megi skilja þá á fleiri en einn hátt sem allir komi þó til greina. Hér gengur hún að breyttu breytanda sama veg og sænski bókmenntafræðingurinn Horace Engdahl sem heldur því fram að rómantískt skáldverk verði einungis krufið með tvísærri sögu- ritun, þ. e. með því að skoða það frá mörgum og mismunandi sjónarhorn- um.k Ummæli hennar um kvæðið «FerðaIok» lýsa þessari afstöðu vel: Nánast hvert orð er margföld tilvísun í munni skáldsins sem yrkir. Þær ber að lesa all- ar en ekki að velja á milli þeirra. Sama orðið vísar í ólík svið eða stig tilverunnar vegna samsvörunar heimanna. Bókmenntagreinarnar, sem vísað er í, eru rómantísk fagurfræði, fornar íslenskar bókmenntir og Biblían. (142) I þessu samhengi er einnig athyglisverð sú skoðun Svövu að skáldverk Jónasar séu «margradda» í þeim skilningi að þau tjái mismunandi sjónar- mið og raddir sem séu ekki alltaf höfundarins (262). Jafnframt heldur hún því fram að útstrikanir og aðrar breytingar Jónasar á textum sínum séu «ekki leiðréttingar heldur hluti af textanum sem ábendingar um margræða túlkun» (153). Hún nefnir t. d. að með þremur mismunandi hugmyndum að heiti «Ferðaloka», þ. e. «Ástin mín», «GömuI saga» og «Ferðalok», sé engu líkara en skáldið vísi í «þrjú mismunandi svið» kvæðisins: «hið fyrsta gæti bent til þess að kvæðið væri ástarkvæði, heitið Gömul saga gæti verið vísun í goðsögu eða fornsögu og ætti þá við hugsjónasviðið. En orðið ferðalok jafngildir kvæðislokum í þeim skilningi að mótsagnir hinna sviðanna tveggja, raunsæis og hugsjónar, eru upphafnar» (156). Að dómi Svövu eru «Ferðalok» því langt í frá «létt kvæði» og «til þess fallin að lesa þau einu sinni fyrir nemendur», eins og Sigurður Nordal hélt fram á sínum tíma þeg- ar hann ræddi um val sitt á textum í íslenzka lestrarbók.9 Þvert á móti séu þau afar flókinn texti sem einungis verði skilinn til hlítar með nákvæmum og margendurteknum lestri. Sveinn Yngvi Egilsson gerir textarýnina einnig að snörum þætti í bók
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.