Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2000, Page 165

Andvari - 01.01.2000, Page 165
ANDVARI SKÁLDSKAPUR OG SAGA 163 Sveinn Yngvi heldur fram í bók sinni, að benda á hvernig skáldið vefur texta sína úr þráðum hefðar og nýjunga. Afstaða Svövu er þó öllu róttæk- ari að því leyti að hún gerir ráð fyrir að bókmenntahefðin sem slík og þar með evrópskur hugmyndaheimur séu falin í tungutaki skáldsins, og minna þau viðhorf ekki lítið á hugmyndir Rolands Barthes um eðli skáldskapar. Vegna þessa telur hún að «óheyrilegt rými og allur tími frá upphafi vega» felist í kvæði Jónasar (123). Hugtakið «hugsæisraunsæi» beinir athyglinni að viðleitni fjölmargra evr- ópskra höfunda 19. aldar til að sameina hugsjón og veruleika.18 Þessu lýsir Svava svo í grein sinni um «Grasaferð»: «ídealið (hugmyndin) er raungert (í mynd eða kvæði) en náttúran ídealíseruð (hafin upp yfir hið einstaka)» (18). í tengslum við þetta grandskoðar hún m. a. skrif Fjölnismanna um skáldskap og bendir á fjölmörg atriði sem vitna um það hve nákomnir þeir hafa verið helstu skáldskaparkenningum samtímans. Sú greining er tví- mælalaust mikið þarfaverk, ekki síst vegna þess hve íslenskum fræðimönn- um hefur verið lítt umhugað um skáldskapar- og fagurfræði 19. aldar. Þar virðast menn oftar en ekki hafa vanmetið þekkingu Islendinga, jafnframt því sem horft hefur verið framhjá erlendum áhrifum. Þau fræðirit sem hér er rætt um benda hins vegar til nokkurra breytinga í þessum efnum. Um það vitna ekki aðeins skrif Svövu um skáldskaparkenningar Fjölnismanna, heldur einnig greining Sveins Yngva á bókmenntaskrifum Gríms Thom- sens frá 5. áratug 19. aldar. Þar bendir hann m. a. á náin kynni Gríms af skrifum Hegels um sögu heimsandans og fagurfræði, tengsl sem sýna hversu vel Grímur hefur fylgst með því sem var efst á baugi í fræðaheimi samtímans. Þegar hin fáu skrif íslendinga um skáldskaparfræði 19. aldar eru lesin vekur athygli hve sjaldan er minnst á norræna höfunda sem vitað er að ís- lenskir rithöfundar höfðu kynni af. Hér má nefna áhrifamikla danska höf- unda á borð við F. C. Sibbern, J. L. Heiberg og R L. Mpller sem allir áttu þátt í að móta hugmyndir Dana um listir og fagurfræði. Öruggt má telja að íslenskir Hafnarstúdentar hafi einnig komist í kynni við fræði þeirra. Við vitum a. m. k. að margir íslendingar sóttu fyrirlestra heimspekiprófessors- ins Sibberns um listir og skáldskap. Þeirra á meðal var Tómas Sæmundsson sem fannst stundum sem «einhver dálítill guð» væri að tala þegar Sibbern ræddi um sálina.llJ Fyrirlestrar hans voru auk þess gefnir út, fyrsti hlutinn, Om Poesie og Konst árið 1834, en þar eru list og skáldskapur skilgreind sem «einstaklingsbundin framsetning eða lýsing einhvers algilds, eða öfugt, algild framsetning eða lýsing einhvers einstaklingsbundins».20 Þessi skil- greining minnir óneitanlega um margt á umfjöllun Svövu um «hugsæis- raunsæi» og sú spurning hlýtur að vakna hvort ekki séu einhver tengsl á milli skrifa Sibberns og Fjölnismanna. í því samhengi má einnig minna á að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.