Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2005, Page 9

Andvari - 01.01.2005, Page 9
ANDVARI FRÁ RITSTJÓRA 7 og störf Halldórs Kiljans Laxness. Það framlag er að minnsta kosti umfangs- meira en frá nokkrum öðrum íslenskum fræðimanni eða söguritara. * Þótt ársins 1955 sé einkum minnst í íslenskri bókmenntasögu fyrir Nóbels- verðlaunin til Halldórs Laxness, má líka minnast þess að á því ári bar fleira til tíðinda á því sviði sem sögulegt er. Þetta var í miðju kalda stríðinu og borgaralegir rithöfundar og stjómmálamenn stofnuðu þá Almenna bókafé- lagið sem átti að vega upp á móti áhrifum róttæklinga og Máls og menningar. Hópur skálda undir forustu Einars Braga hóf á sama ári útgáfu Birtings hins nýrri, sem var merkilegt rit með ferskum blæ og átti drjúgan þátt í að halda íslenskum skáldskap í tengslum við nýja list erlendis. Birtingur var eins konar málgagn atómskáldakynslóðarinnar. En árið 1955 kom út fyrsta ljóða- bók yngra skálds sem tekið var með miklum fögnuði, Kvœðabók Hannesar Péturssonar. / / Ari fyrr hafði Magnús Asgeirsson kynnt Hannes í Ljóðum ungra skálda, og var það eitt síðasta verk Magnúsar sem lést árið 1955. Hannesi var fagnað sem brúarsmiði milli gamals og nýs í íslenskum skáldskap. Þegar Ljóð ungra skálda komu út ritaði Sigurður Þórarinsson grein í Morgunblaðið 21. desem- ber 1954 sem hefst svo: „Síðastliðinn miðvikudag barst mér í hendur ein sú ánægjulegasta bók, sem ég hef litið um langt skeið. Ég hafði ekki lesið lengi í þessari bók þegar ég var kominn í þá fagnaðarstemningu að ekki vant- aði mikið á að ég hlypi niður á Lækjartorg, stigi þar upp á kassa og vitnaði hástöfum: Fögnum, bræður og systur. Mikið skáld er upp risið meðal vor!“ Skáldið var Hannes Pétursson, tuttugu og þriggja ára, og hafði ungu skáldi á Islandi víst ekki verið fagnað jafneindregið frá því Kristján Albertsson heils- aði Vefara Halldórs Laxness með hinum frægu orðum: „Loksins, loksins!“ Frá útgáfu Kvæðabókar hefur Hannes Pétursson verið í fremstu röð íslenskra skálda og list hans dýpkað með aldri. Árið 1955 kom einnig út ljóðabók Jóhannesar úr Kötlum, Sjödægra, þar sem þetta virta þjóðskáld og eldrauði baráttumaður gengur öruggum skrefum til móts við módernismann og skilar sinni bestu og auðugustu bók, sem speglar heimsástand eftirstríðs- áranna í sterkum og skáldlegum myndum. Enn er þess að geta um bókmenntaárið 1955 að þá kom út fyrsta skáld- saga ungs höfundar sem bregður upp minnilegri samtíðarmynd frá því þegar ótryggum heimi nútímans og borgarinnar slær saman við hinn staðfasta heim sveitarinnar. Þetta er bók Indriða G. Þorsteinssonar, Sjötíu og níu afstöðinni, ógleymanleg saga öllum sem lesið hafa, enda hefur hún lifað betur en önnur verk frá þessum tíma. Nýlega hefur Kristján B. Jónasson bókmenntafræð- ingur komist svo að orði um sögu Indriða, í formála að sjöttu útgáfu hennar, 2001: „Sagan öðlaðist þegar í stað þann sess sem hún hefur æ síðan haft:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.