Andvari - 01.01.2005, Qupperneq 25
andvari
ÞÓRARINN BJÖRNSSON
23
látinn frá fyrstu tíð og gerði hann miklar kröfur til kennara, bæði sín
og annarra. I skólasetningarræðu 1956 segir hann: „Ég vona, að kenn-
aramir [í Menntaskólanum á Akureyri] gefi skólanum sem mest af
sálu sinni, því að án þess verður enginn merkur í kennarastarfi. Göfgi
og erfiði kennarastarfsins er í því fólgið, að það er sálarstarf. Það má
aldrei gleymast“.25 Göfgi kennarastarfsins var í því fólgið að það er
sálarstarf og kennarar áttu að gefa skólanum sem mest af sálu sinni.
Sjálfur gaf hann skólanum alla sálu sína.
Eg hefi alltaf haft gaman af kennslunni. Mér finnst næstum, að kennslan sé
hvíld frá öðru starfi í skólanum. Ég segi stundum í gamni, að ég haldi, að það
sé álíka fyrir mig að fara í kennslustund og fyrir suma aðra að fara í lax. í
kennslunni gleymi ég áhyggjum af öllu öðru, en það er oft erfitt utan kennslu-
stunda. Kennslan er á þann veg hvíld frá áhyggjum, þótt hún krefjist auðvitað
sinnar orku.26
Þórarinn Bjömsson naut þess að kenna og hann gerði miklar kröfur til
kennarans og til kennslunnar sem hann sagði vera listrœnnar œttar.21
Nemendur hans ljúka allir upp einum munni um ágæti hans sem kenn-
ara. Andrés Björnsson [1917-1998], fyrrum útvarpsstjóri, segir: „Mér
er Þórarinn minnisstæður frá fyrstu starfsárum hans í Menntaskólanum
a Akureyri. Honum fylgdi lifandi andi mennta og mannúðar, og hann
gaf okkur sýn yfir svið, stærri og svipmeiri en við áttum að venjast.
Hann var logandi af áhuga á starfi sínu. Hann kenndi af ástríðufullri
akefð, sem aðeins fáum útvöldum er gefin. Hann hreifst af viðfangs-
ofnum sínum, en hitt var þó ekki síður áberandi, hversu hann unni
nemendum sínum og lifði sig inn í hug þeirra og tók þátt í högum
þeirra.“28
Sverrir Pálsson, fyrrum skólastjóri Gagnfræðaskóla Akureyrar,
8egir: „I kennarastól var Þórarinn Bjömsson ógleymanlegur, og tel
eg á engan hallað, þegar ég segi, að hann sé besti kennarinn, sem ég
hefi kynnst. Hann sameinaði á sjaldgæfan hátt þjóðlega og alþjóðlega
foenntun. Hann batt sig ekki um of við bækur, heldur lagði jafnan
mikið til frá sjálfum sér. Hann hafði ekki einungis lag á að halda
athygli nemenda vakandi, heldur einnig að gera námið að heillandi
skemmtun, ljúka upp berginu.“29
__ Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur, fyrrum alþingismaður og
raðherra, segir Þórarin hafa verið afburða kennara og mikinn skóla-
naann en „mjög seinfenginn til breytinga á skólastarfi og ekki harð-