Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2005, Page 29

Andvari - 01.01.2005, Page 29
andvari ÞÓRARINN BJÖRNSSON 27 þótti fremur eitthvað fallegt við það að ganga svo hreint til verks. Var ekki eitthvað heilt við það að lifa svo heitt og sterkt, að menn gleymdu öllu því, sem fram fór umhverfis? Það þótti mér, gestinum að norðan, þar sem of margt er ef til vill gert í felum.“36 Við skólaslit 1958 rifjar hann upp að merkur maður og lífsreyndur hafi eitt sinn sagt honum „að þrisvar hafi hann orðið glaðastur um ævina: þegar hann varð stúd- ent, þegar hann trúlofaðist og þegar honum fæddist fyrsta barnið“.37 Fjölskylda, kona og böm, voru honum því hugleikin og urðu Þórarni Bjömssyni mikils virði í lífinu. Ahugi Þórarins Björnssonar á tónlist vaknaði snemma og var hann mikill tónlistarunnandi alla ævi og sat sem formaður Tónlistarbanda- lags Akureyrar þegar það beitti sér fyrir stofnun tónlistarskóla á Akur- eyri árið 1946. Kom í hlut Þórarins að setja Tónlistarskóla Akureyrar 20. janúar 1946 og bjóða skólastjórann, Margrétu Eiríksdóttur, vel- komna til starfa við skólann með þessum orðum: Eins og kunnugt er hefir ungfrú Margrét Eiríksdóttir verið ráðin til forstöðu hans og jafnframt píanókennari hans. Er það tvímælalaust mesta happið, sem fyrir skólann hefur komið. Megum við þakka það Jakob Tryggvasyni, organ- ista. Það var hann, sem reyndist svo farsæll, og er mér enn að nokkru hulið, hvemig það mátti verða, að Reykvíkingar, sem yfir öllu gúkna, lifandi jafnt sem dauðu, létu ungfrú Margréti ganga úr greipum sér. Vandamenn og ábyrgð- armenn Tónlistarskólans eiga vart aðra ósk einlægari en þá, að skólanum auðn- ist sem lengst að njóta ágætra krafta hennar. Með hljómleikum þeim, er hún hefir haldið bæði syðra og nyrðra, hefir hún sýnt, hvers hún er megnug sem listakona. En sagan er ekki þar með öll sögð. Vinur minn Róbert Abraham, sem mér finnst skrifa tónlistardóma sína af meiri skýrleika og anda en títt er í íslenskum blöðum, eins og hans var líka von og vísa, lét þess getið í umsögn sinni í Morgunblaðinu um hljómleika Margrétar, að hún hefði sýnt bæði lista- þroska og mannlegan þroska. Það er auðsætt, að til listaafreks þarf listaþroska, en listaþroski er ekki einhlítur til árangurs í skólastarfi. Þar ríður ekki minna á hinum mannlega þroska. Það hefir löngum þótt brenna við, að listamenn væru nokkur „vandræðabörn“, en slíkt verður ekki um Margréti sagt. Hún vekur óvenju mikið traust.38 Bjóst er að Margrét Eiríksdóttir vakti þegar mikið traust með Þórarni Björnssyni, eins og raunar öðrum sem henni kynntust. Traust hans breyttist í aðdáun og ást og skein ást og aðdáun ávallt úr augum Þórar- ms þegar hann leit á hana og dáði hann konu sína mjög. Þau Margrét °g Þórarinn gengu í hjónaband 22. júní 1946 og stofnuðu bú í Brekku- götu 13 þar sem þau bjuggu til vors 1948 að þau fluttust í skólameist-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.