Andvari - 01.01.2005, Side 30
28
TRYGGVI GÍSLASON
ANDVARI
araíbúðina í gamla skólahúsi Menntaskólans á Akureyri. Þar bjuggu
þau til vors 1960 en þá fluttust þau í nýja skólameistaraíbúð í Heima-
vist MA og bjó fjölskyldan þar til vors 1968.
Margrét og Þórarinn eignuðust tvö börn, dóttur og son. Dóttirin,
Guðrún Hlín, er fædd á Akureyri 17. apríl 1947, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1967 og kennaraprófi 1968 og starfaði
allmörg ár sem kennari en vinnur nú við verslunarstörf í Reykjavík.
Sonurinn, Bjöm, fæddist á Akureyri 22. júní 1949, lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri 1969 og almennu læknaprófi frá
Háskóla Islands 1976, stundaði sérfræðinám í Bandaríkjunum og er
sérfræðingur í lyflækningum, lungnasjúkdómum og gjörgæslulækn-
ingum. Björn stundaði kennslustörf við bandaríska háskóla en er nú
yfirlæknir lungna- og taugadeildar King’s Daughters Medical Center í
Ashland í Kentucky.
Guðrún Hlín giftist 1968 Gísla Björnssyni Blöndal, rafvirkja og
raftæknifræðingi, og eignuðust þau dótturina Margrétu 19. apríl 1968.
Guðrún Hlín og Gísli skildu 1972. Árið 1974 giftist Guðrún Hlín Sig-
urði Karlssyni viðskiptafræðingi og eiga þau þrjú börn, Þórönnu, fædd
14. september 1974, Svanhildi, fædd 24. nóvember 1976, og Karl, sem
fæddur er 13. apríl 1979. Björn Þórarinsson kvæntist 1970 Frances
Thomson Þórarinsson og eiga þau tvö böm, Þórarin, sem fæddur er 16.
apríl 1975, og Susannah Tace, sem fædd er 12. maí 1980. Afkomendur
Margrétar Eiríksdóttur og Þórarins Bjömssonar eru 15 talsins. Margrét
Eiríksdóttir lést í Reykjavík 1. september 2001 og hvfla þau hjón hlið
við hlið í kirkjugarðinum á Höfðanum á Akureyri.
Skólameistari
Sigurður Guðmundsson sótti um lausn frá embætti með bréfi til forseta
Islands sem dagsett er 12. september 1947. Var embætti skólameistara
við Menntaskólann á Akureyri þá auglýst laust til umsóknar í fyrsta
skipti.39 Umsækjendur voru fjórir: Ármann Halldórsson, skólastjóri
Miðbæjarskólans í Reykjavík [1909-1954], Brynleifur Tobiasson
[1890-1958], Steindór Steindórsson frá Hlöðum [1902-1997] og Þór-
arinn Bjömsson, en þrír hinir síðast nefndu voru kennarar við skólann
en allir umsækjendur höfðu stundað nám við skólann.
Ymsar vangaveltur voru um það hver hlyti hnossið. Til er bréf frá