Andvari - 01.01.2005, Qupperneq 32
30
TRYGGVI GÍSLASON
ANDVARI
svarað ákveðið: „Það kemur enginn annar til greina en Þórarinn Björns-
son.“42
Hvort sem ummælin eru rétt eftir höfð eða ekki, er fullvíst að Sig-
urður vildi engan annan sem eftirmann sinn en Þórarin. I bréfi, sem
Sigurður skólameistari skrifar menntamálaráðuneytinu 25. nóvember
1947 með eftirriti af fundargerð kennarafundar sem haldinn hafði
verið daginn áður, segist hann telja „hollast og heppilegast, að Þórar-
inn Björnsson taki nú við skólanum og forstöðu hans. Virðist mér hin
leynilega atkvæðagreiðsla kennarafundar og bréf hr. Hermanns Stef-
ánssonar [íþróttakennara skólans] sterklega styðja þá skoðun mína og
sannfæring.“43
Kennarafund þann, sem skólameistari vitnar til, sátu 10 kennarar auk
skólameistara sjálfs. Við skriflega atkvæðagreiðslu á fundinum hlaut
Þórarinn Bjömsson meðmæli sex fundarmanna, Ármann Halldórsson
hlaut meðmæli tveggja fundarmanna en tveir seðlar voru auðir.44 Hinir
tveir umsækjendurnir hlutu ekki meðmæli. Enginn þeirra þriggja, sem
kennarar voru við skólann, sat fundinn. Einn fundarmanna virðist því
ekki hafa skilað atkvæði. Á fyrrnefnt bréf Sigurðar skólameistara til
ráðuneytisins er skrifað með hendi Birgis Thorlaciusar ráðuneytis-
stjóra: „Veita Þórarni Björnssyni frá áramótum.“ Þórarinn Bjömsson
var síðan skipaður skólameistari Menntaskólans á Akureyri frá 1.
janúar 1948.
Sagan segir að Sigurður Guðmundsson hafi ekki viljað láta af emb-
ætti skólameistara meðan Brynjólfur Bjarnason sat í sæti menntamála-
ráðherra af því að hann óttaðist að í stöðu skólameistara Menntaskól-
ans á Akureyri yrði þá skipaður óhollur maður. Hafi hann því beðið
með að láta af störfum þar til hagstæðari vindar blésu og ný ríkisstjóm
var tekin við, enda þótt hann hefði væntanlega viljað hætta fyrr, því
að í mars 1937 fór hann til Kaupmannahafnar með leyfi kennslumála-
ráðherra sér til heilsubótar.45 Nýsköpunarstjórnin, sem svo var nefnd,
var fyrsta þingræðisstjórnin í sögu lýðveldisins og var samsteypu-
stjóm Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks undir for-
sæti Olafs Thors, formanns Sjálfstæðisflokksins, mynduð 21. október
1944. Menntamálaráðherra í þeirri stjórn var Brynjólfur Bjarnason úr
Sósíalistaflokknum. I stjómarandstöðu var Framsóknarflokkurinn en
Sigurður Guðmundsson fylgdi þeim flokki að málum.
Hinn 4. febrúar 1947 tók við af nýsköpunarstjóminni ríkisstjóm
Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir forsæti