Andvari - 01.01.2005, Side 33
ANDVARI
ÞÓRARINN BJÖRNSSON
31
Stefáns Jóhanns Stefánssonar, formanns Alþýðuflokksins, en hann
hafði mikla andúð á kommúnistum eins og fleiri Alþýðuflokksmenn
á þeim tíma, en Þórarinn Björnsson fylgdi Alþýðuflokki að málum.
Menntamálaráðherra í rrkisstjórn Stefáns Jóhanns var Eysteinn Jóns-
son úr Framsóknarflokki. Þá var óhætt að láta af störfum. Til er bréf frá
Eysteini Jónssyni menntamálaráðherra, skrifað 19. mars 1947, þar sem
segir að Sigurður Guðmundsson hafi „haft við orð að láta af embætti á
hausti komanda.“ Styður þetta bréf sögnina um að Sigurður Guðmunds-
son hafi viljað bíða betri vinda. Sigurður Guðmundsson baðst síðan
lausnar frá og með 1. desember 1947, en var settur skólameistari til árs-
loka 1947 af einhverjum orsökum, væntanlega vegna launamála. Sig-
urður Guðmundsson hefði hins vegar samkvæmt lögum, sem þá voru
í gildi, getað setið til ársloka 1948, en hann var fæddur 3. september
1878, en þetta varð niðurstaða refskákarinnar. Sigurður Guðmundsson
lést af hjartabilun á heimili sínu að Barmahlíð 39 í Reykjavík 10. nóv-
ember 1949, tæpum tveimur árum eftir að hann lét af embætti.
Skólameistarinn
Eórarinn Björnsson var virtur skólameistari, þótt ýmsir lægju honum
a hálsi fyrir tilfinningasemi og hlutdrægni, en flestir nemendur dáðu
hann fyrir gáfur, mannskilning og hlýju, sem hann hafði til að bera í
ríkum mæli. Á stundum virtist hins vegar sem þennan gáfaða mann
hrysti dómgreind og hann tapaði áttum. Einkum var það í viðskiptum
yið breyska nemendur sem brutu reglur skólans eða urðu skólanum til
vansæmdar. Hann var viðkvæmur og örgeðja og tók slíkt nærri sér og
var eins og honum fyndist gert á sinn hlut, ef út af var brugðið.
Dr. Halldór Halldórsson prófessor lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri vorið 1932 og kenndi við skólann hálfan annan ára-
tug, fyrst undir stjóm Sigurðar Guðmundssonar og síðan undir stjóm
Þórarins Björnssonar til ársins 1951. Halldór Halldórsson taldi Þórarin
Ejömsson einn sinn nánasta vin sem „hafði til að bera mikið næmi,
fágætt minni, örugga rökhugsun og óvenjulegt hugmyndaflug“.46 í
tninningargrein segir Halldór Halldórsson:
Það var ekki vandalaust verk að taka við skólameistaraembætti af Sigurði
Guðmundssyni. Þótt þeir Þórarinn væru miklir vinir, voru þeir um margt mjög
ólíkir. Sigurður var frábærlega til stjómar fallinn, mikilhæfur og aðsópsmikill.