Andvari - 01.01.2005, Qupperneq 60
58
AÐALGEIR KRISTJÁNSSON
ANDVARI
fræðilega kennslu (Videnskabelig Underviisning) hins vegar. í málakennsl-
unni voru námsgreinamar, dönsk tunga, latnesk tunga, gríska, hebreska,
franska og þýska. Þegar til fræðanna kom voru námsgreinamar landafræði,
saga, tölvísi og rúmmálsfræði. í Bessastaðaskóla var hvorki kennd franska
né þýska og í raungreinum var kennslan ófullkomin í upphafi (Sama rit,
41-75).
Þegar Guttormur Pálsson hætti kennslu tók við af honum Jón Jónsson,
kenndur við Flekkudal í Kjós. Hann var tveimur ámm yngri en alnafni hans
og brautskráður úr Hólavallarskóla 1801, en innritaður í Hafnarháskóla haustið
1805. Hann tók undirbúningsprófin með fyrstu einkunn og að þeim loknum
lagði hann stund á málfræði við kennaradeild háskólans, en lauk ekki námi, þar
sem hann var settur aukakennari (adjunkt) við Bessastaðaskóla 1807. Haustið
1815 var hann skipaður í embættið, en þar sem hann hafði lent í útistöðum við
nágranna sinn, sigldi hann áleiðis til Hafnar með póstskipinu á útmánuðum
1817 þeirra erinda að sækja um Breiðabólstað í Fljótshlíð, en skipið fórst með
allri áhöfn við Saxahólsbjarg undir Snæfellsjökli. Séra Ámi Helgason tók við
kennslu hans um nokkurt skeið.
Jón Jónsson eldri varð lektor (skólastjóri) í stað Steingríms Jónssonar og
gegndi því starfi þar til skólahaldi lauk á Bessastöðum vorið 1846. Sama ár
og Jón varð lektor var Hallgrímur Scheving ráðinn til skólans. Hallgrímur
var fæddur 1781 og braustskráður úr Hólaskóla. Hann var skráður í stúdenta-
tölu 5. maí 1804 og lauk undirbúningsprófum ári síðar með fyrstu einkunn.
Líkt og Jón frá Flekkudal hóf hann nám í málfræði við „Seminarium pæda-
gogicum" og lauk þaðan prófi með latínu og grísku sem aðalfög 1809. Á
háskólaárum sínum vann hann tvívegis til verðlauna og árið 1815 hlaut hann
doktorsnafnbót fyrir rit sitt „Observationes criticæ in qvædam Bruti Cicer-
ionis loca“ um Brutus í ritum Ciceros. Hallgrímur var alla tíð latínukennari
Bessastaðaskóla. Hann naut mikils álits sem kennari og fræðimaður, en verka
hans sér nú lítinn stað.
IV
Stjómvöld fóru sér hægt að skipa nýjan kennara í stað Jóns frá Flekkudal,
en árið 1819 varð þar breyting á. Sveinbjörn Egilsson lauk prófi í guðfræði
við Hafnarháskóla 11. janúar 1819 með fyrstu einkunn. Hann hafði ekki lært
undir stúdentspróf á Bessastöðum, heldur notið kennslu séra Áma Helga-
sonar í Görðum sem brautskráði hann 1810. Sveinbjöm var fæddur 1791 og
ólst að nokkru upp í Viðey hjá Magnúsi Stephensen. Hann var skráður í stúd-
entatölu Hafnarháskóla 11. janúar 1815, þá 23 ára að aldri. Námsferill hans
við háskólann var með ágætum og ásamt námi vann hann að útgáfustörfum
fyrir Hið íslenska bókmenntafélag. Sveinbjöm var skipaður kennari við