Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 61
andvari
BESSASTAÐASKÓLI
59
Bessastaðaskóla 27. mars 1819. Líkt og Jón frá Flekkudal kenndi Sveinbjöm
grísku og sögu og fleiri námsgreinar á Bessastöðum allt þar til skólahaldi
lauk.
Litlar sögur fara af kennslu í stærðfræðigreinum á Bessastöðum í upphafi.
^f því leiddi að þegar íslenskir stúdentar þreyttu inntökupróf við Hafnarhá-
skóla þurftu þeir að fá sérkennslu í þeim námsgreinum til að standast það.
t*að tók hátt í tvo áratugi að ráða bót á þessu, en 14. maí 1822 var Bimi Gunn-
laugssyni veitt kennarastaða við skólann, þar sem hann kenndi stærðfræði
auk annarra námsgreina. Með tilkomu Bjarnar á kennarastól á Bessastöðum
má segja að kennsla í raungreinum hefjist með nútímasniði í íslensku skóla-
kerfi og hann var fyrsti kennarinn sem hafði kennslu og rannsóknir í raun-
greinum að ævistarfi.
Bjöm Gunnlaugsson var orðinn 29 ára þegar hann innritaðist í Hafnarhá-
skóla, fæddur 1788. Hann hafði aldrei í Bessastaðaskóla komið frekar en
Sveinbjöm Egilsson, heldur numið skólalærdóm sinn hjá prestum í nágrenni
sínu, en í raun var hann að miklu leyti sjálfmenntaður. Geir biskup Vídalín
brautskráði hann árið 1808. Tíu árum seinna, 2. janúar 1818, var hann tek-
*nn í stúdentatölu og vakti þegar athygli fyrir frábæra kunnáttu í stærðfræði
Þar sem hann vann tvívegis til verðlauna. Bjöm tók ekki embættispróf, en
stjómvöldum þótti einsýnt að nýta hæfileika hans til kennslu á Bessastöðum
°g gripu tækifærið þegar garðvist hans lauk á vordögum 1822 að senda
hann heim til íslands þeirra erinda. Með komu hans að skólanum var bætt úr
krýnni þörf.
Bjöm Gunnlaugsson var síðasti kennarinn sem fastráðinn var við Bessa-
staðaskóla. Gísli Magnússon kenndi einn vetur í forföllum Sveinbjamar
Egilssonar, veturinn 1845M-6. Hann var eini kennari Bessastaðaskóla sem
Þar hafði áður stundað nám. Þegar Grímur Thomsen dvaldist í foreldrahúsum
a Bessastöðum um áramótin 1843-44 sagði hann nemendum til í frönsku og
5 það í eina skiptið sem vitað er til að skólanemendur hafi átt kost á kennslu
1 því máli.
Með tilkomu Bessastaðaskóla þrengdi mjög að möguleikum pilta til að
húa sig undir hvort heldur var háskólanám eða hljóta prestsvígslu eins og
t'ðkaðist meðan stólsskólamir voru við lýði sakir fjarlægðar og þess hve
skólinn brautskráði fáa nemendur. Húsakostur Bessastaðaskóla takmarkaði
nemendafjöldann en hann var mestur um 40.
Þegar manntalið 1845 var tekið voru 39 skólasveinar í Bessastaðaskóla.
*ngstur var sonur dómkirkjuprestsins, Stefán Helgason Thordersen, 17 ára
að aldri. Hann tók brottfararpróf árið eftir og var í hópi síðustu Bessastaða-
studenta. Tveir aðrir voru innan við tvítugt. Elstur var Jakob Guðmundsson,
b ára að aldri. Hann kom í Bessastaðaskóla 1844, en tók stúdentspróf frá
L®rða skólanum 1847.