Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2005, Side 125

Andvari - 01.01.2005, Side 125
ANDVARI UPPSPRETTUR TÍMANS OG VATNSINS 123 í Lokaljóðum Steins). Hliðstæður eru dregnar fram í mannen utan vág, þegar margar setningar í röð hefjast á að (att). Allskyns hliðstæður í orðalagi em og áberandi í Tímanum og vatninu, og nægir að benda á upphafsljóðið sem dæmi. Tíðni merkingarbærra orða segir þó meira. I mannen utan vág ber sérstak- lega mikið á auga, sjá, skoða o.þ.u.l.5 í ljóðum Steins er sjónskynjun enn meira áberandi. En fleiri orð hljóðskynjunar kæmu til álita, svo sem sam- hljómur, þytur, hlátur og þögn6, þótt miklu meira beri á birtu, Ijósi, skugga, myrkri, sól(skini) o.þ.u.l. Mér virðist hinsvegar ófæra að flokka þessar flóknu ljóðmyndir Steins tölulega eftir sjón- eða heymskynjun. Starsýnast verður þó Hallberg á tíðni sértaka (bls. 535), helstu orð um þau eru dauði, draumur o. fl. þ. h., líkt og hjá Steini7. Með þeim fyrirvara að ekki er víst að Hallberg hafi talið eins mörg sértök, þá virðast þau tvöfalt meira áberandi í Tímanum og vatninu og Lokaljóðum Steins en í mannen utan vág. Margt af þessu er algengt í ljóðum, en þó hefur löngum þótt óljóðrænt að nota sértök. En á móti kemur, að þessi sértök eru yfirleitt tengd hlutlægum fyrirbærum, og það á sérkennilegan hátt, ekki síst í eignarfallssamsetningum, svo sem brátt skal rakið. Hvað sem líður fyrrgreindum ummælum um að mannen utan vág sé tor- skilið, þá er það að sama skapi laðandi til túlkunar. Raunar er margt auðskilið í því, t.d. setningin „að skjóta óvin og vefja vindling“ (xxviii, 1), sem sýnir tilfinningakulda gagnvart manndrápum, enda er ljóðabálkurinn ortur í upp- hafi seinni heimsstyrjaldar. Og þannig eru margar Ijóðlínur, enda er nokkuð um tiltölulega hefðbundnar líkingar innan um þær nýstárlegu. Fáein dæmi mætti nefna: stormur endumýjunar (vii,13), grenitrén draga vængi (xi, 6), skarpt ljós vitundarinnar (xvii, 1), bað rökkursins (xviii, 6), blístur regnsins (xx, 8), dropar tímans í skaut liðins (xxii, 11), högg örlaganna (xxxv,8). Þannig grípur ljóðabálkurinn mannen utan vág lesendur með kunnuglegu ljóðmáli, en leiðir þá skjótt í ógöngur, ef svo mætti að orði komast. Linder segir (bls. 841-5) að vissulega eigi sú túlkun við mestan hluta ljóðabálks- ins að ljóðin spegli sama sálarástandið aftur og aftur, en þó megi rekja frá- sagnarþráð í bálkinum. Upphafsljóðin tvö, sem standa í svigum, lýsi því að ómögulegt sé að komast til botns í heiminum. Síðan sé fylgt ferð „mannsins vegalausa“, sem einnig birtist sem auga á stöpli og sem flóttamaður, er leiti dauðans, Kristi líkur beri hann fram viðvaranir, en ævinlega ríki úrræðaleysi. En úr vonbrigðunum rísi ljós, mitt í bálkinum, hefur Linder eftir samtíða túlkandanum Wall. Bjartari hliðar tilverunnar birtist í ljóðunum xxi og xxii, en aftur syrti í xxv-xxvii. Þannig gangi þetta áfram, sitt á hvað, en í síðustu tveimur ljóðunum nái „förumaðurinn“ nýrri sýn, sem rúmi bæði neikvætt og jákvætt í stóískri ró. Lesendur munu kannast við að þessi heildarmynd á í meginatriðum einnig við Tímann og vatnið. Hallberg vitnar í lok túlkunar sinnar (bls. 553) til orða Pauls Ricoeur um
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.