Andvari - 01.01.1933, Qupperneq 40
36
Fiskirannsóknir.
Andvari
norðan Hraunin, en skipstjóri vildi heldur »kippa« norð-
ur á bóginn, bjóst ekki við að aflinn yrði mikili inni í
Flóa, ef margir yrðu um hann. Kl. 11 um kveldið var
haldið af stað norður fyrir Jökul; var þá töluverð undir-
alda af SA, enda var austanstormur um daginn við
Vestmanneyjar.
Að morgni næsta dags var stanzað í norðurbrún
Kolluáls, 10 -12 sjóm. VNV af Öndverðarnesi; var þar
mergð af Færeyingum (40 -50 skip) í kringum oss.
Þetta mið hefir oft reynst vel; nú var útkoman af 3 drátt-
um, skaufi, endilangur belgurinn rifinn og slöttungur;
aflinn var 1 stórflyðra, nokkuð af karfa, fáeinar ýsur
og nokkuð af þorski. Margt af þorskinum var enn ó-
gotið, en komið að gotum, þ. e. hrygningin skemmra á
veg komin, en við Suðurland.
Skipstjóri vildi ekki liggja yfir þessu og var því
haldið áfram norður með landi, hálft um hálft í þeim
tilgangi, að fara norður fyrir og reyna Skagagrunnið og
fylgdi oss lengi mergð af ritu, nokkurir máfar og fýlar,
eflaust í þeim tilgangi, að fá sér bita, ef farið yrði að
fiska aftur. En það dróst. Það varð þó ekki úr, að farið
yrði norðurfyrir, því að þegar komið var fyrir Barðann
var fína veðrið búið, kominn NA-strekkingur og skugga-
legur þokuveggur framundan og eftir stutta 6tund vor-
um vér inni í þokunni, kaldri og hráslagalegri. Var
stefnan sett á »Hólinn«, því að þar þykir góð aflavon
af »vorfiski< á þessum tíma, og komum við þangað kl.
10 um kvöldið'
Eg hefi áður minnst á hið einkennilega mið, »HóI-
inn«, án þess að lýsa því nánara. Nafnið er ekki alls-
kostar viðeigandi, ætti heldur að vera »Hleinin«, því að
hér er um heljar mikla hlein að ræða, sem gengur frá
A til V út úr miðri Álsbrún, opna Aðalvík, o: 20 sjóm*