Andvari - 01.01.1927, Síða 65
Andvari
Fisliirannsóknir
63
straumar á yfirborði og úfinn sjór. Sökum þessara hörðu
strauma verður botninn á þessum stöðum mjög ójafn,
allur með hólum, hnúskum og lausum steinum, stórum
og smáum, þar sem alt smágert laust efni skolast burtu,
en eftir verður beinharður leir og grjótið. Er botninn
því mjög slæmur fyrir vörpuna og rífur hana mjög, en
er þó sagður að vera farinn að jafnast nokkuð.
Við vorum á Hala 19.—28. ág., fiskuðum á öllu dýpi
frá 80 til 140 fðm., mest á 90—120, og öfluðum sæmi-
lega, því að veðrið var alt af rólegt; þó var það enginn
uppgripa-afli, góðir drættir við og við, en lítið á milli
og varpan oft rifin, stundum mikið. 20—25 skip voru
nú að jafnaði á veiðum þarna.
Á þessum miðum verður vart við rúml. 20 fiska-
tegundir og eru karfi, ufsi og þorskur þar langsamlega
yfirgnæfandi; halda þeir sig þar mikið til hver á sínu
dýpi, efstur er ufsinn, svo þorskurinn og dýpst karfinn.
— Af karfa er þar svo mikil mergð, að hvergi er senni-
lega líkt því hér við land og þó víðar væri leitað.
Er mest af honum, einkum stór-karfanum, fyrir neðan
115 fðm., og þegar dregið er svo djúpt, fæst oft »5—
10-skiftur poki« eftir !/2—1 klst., eða enn þá meira.
En því miður verður mönnum lítið úr þessum góða fiski;
honum er tíðast mokað jafn-harðan í sjóinn aftur, og
hann er innbyrtur; lítið eitt er hirt við og við af háset-
um eða selt Norðmönnum í Reykjavík til söltunar og
dálítið hetir verið flutt til »bræðslu« til Sólbakkaverk-
smiðjunnar við Onundarfjörð. Það eru aðallega Þjóðverjar
og Skotar, sem leggja hann í ís og selja í Aberdeen.
Eg stakk upp á því í »Verði«, að reynt yrði að salta hann
til innanlandsneyzlu og selja hann bændum, en engin
framkvæmd er orðin á því enn. Karfinn er ágætur til
matar, saltaður og reyktur upp úr salti. ísmarkað hafa