Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 85
83
því Snæfellsjökull er 4577 fet, eptir því sem fannst
þegar strandmælingarnar voru gjörðar.
Hinir næstu, sem gengu upp á Snæfellsjökul, voru
Englendingar, þeir komu sjóleiðis að Stapa, 14. júlí
1789, formaður ferðarinnar var Sir John Stanley;
Mr. WrigM heíir lýst ferðinni1. Þeir riðu frá Stapa
kl. 8 um morguninn upp með Stapafelli og upp
hraunin þar fyrir ofan, þeir vor 8 í ferðinni, 6 Eng-
lendingar, 1 danskur timburmaður og einn íslenzkur
fylgdarmaður; kl. lO^/s voruþeir konmir upp að snælínu
á Jökulhálsi, þar skildu þeir eptir hestana og létu
fylgdarmanninn gæta þeirra. Þeir félagar voruallir
á sokkum utan yn'r til þess að geta staðið betur á
hálku. Fyrst framan af var krapi og ófærð nokkur,
en svo varð snjórinn harðari, þá urðu fyrir þeim
margar sprungur og urðu þeir að fara ótal króka
til þess að komast fyrir þær, sumar stukku þeir yíir
með broddstöfunum en sumar voru 3—4 álna breið-
ar og afardjúpar, sáu þeir í sprungubörmunum mis-
munandi snjólög frá ýmsum árum og niðri í sprung-
unum tindraði ljósið á ísnum með bláum og grænum
litbla\ Þegar þeir áttu eptir 500 fet upp að toppi,
staðnæmdust þeir þar, voru sprungurnar orðnar mjög
slæmar og ísinn ákaflega háll, urðu þar allir eptir
nema tveir; Stanley og Wright, þeir héldu áfram og
skriðu á höndum og fótum; í mestu brettunni varð
fyrir þeim stór sprunga, sem þeir ekki ætluðu að
geta komizt yfir, enloks fundu þeir snjóbrú ogkom-
ust yfir á henni. Danska timburmanninn, sem með
þeim var höfðu þeir fengið með sér á Stapa tilþess
að bera loptþyngdarmælirinn, því þeir ætluðu að
1) JoJin Barrow, jun: A visit to Iceland in the summer of
1834. London 1835. bls. 263—275.
6*