Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 82
80
byggðum þrepum, cn fyrir ofan er raðað hellum, sem
mynda loptið, er niður er gengið, óg er niðurgangan
mjög rumgóð, svo er vatn í botninum. Sagt er, að
niðri i því séu i> stokkar ö'g komi sín uppsprettan
úr hvcrjum. Á að vcra tært bergvatn í einni, öim-
ur á að vcra með ölbragði, en hin þriðja með sæv-
arkeim. Eg kom ekki út á Öndverðarnes, og heft
þetta því eptir annara sögusögn og get ekki um
brunninn dænit; eg heyrði ekki um hann fyrr en
cptir að eg hafði farið þar um, annars hefði eg farið
fram á Öndverðarnes að skoða hann; að öðru leyti
er þar ekkert að sjá nema hraun. Þegar við vorum
komnir fram hjá móbergsrananum, sem Hreggnasi
xíxy á, varð fyrir okkur Prestahraun; það er úfið
upalhraun, sem hefir runnið niður um dalkvos fyrir
norðan Nasa; norðan við þetta hraun eru Skál og
Búrfell. Þegar Prestahrauni sleppir, taka við mel-
öldur og holt út undir Ingjaldshó]. Þar vorum við
um nóttina.
Frá Ingjaldshóli fórum við na^sta dag aptur til
baka að Hellnum; var um morguninn súld og þoka,
en hellirigning seinni hluta dags. Við fórum efri
veg, nokkuð styttri til baka; fer maður þá alllangt
fyrir ofan verstöðvarnar, í rótum jökulsins, og er yfir
eintóm hraun að fara. ísnúin hraun koma framund-
an röndum nýrri hraunanna, bæði hjá Búrfelli að
norðan og kring um Laugabrekku að sunnan. Eg
hafði hugsað mér að ganga upp á jökulhm einhvern
af hinum næstu dögum, en rigningar og þokurhéld-
ust í langan tíma á eptir, svo slík ganga hefði eigi
orðið til neins gagns, enda hefir opt verið gengið
upp á jökulinn og hann skoðaður.