Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 87
85
sér spor í gjáarbarminn hinumegin og komust svo
yfir; en þar fyrir ofan var örðugt að komast áfram,
því hjarnið var snarbratt, svo þeir gátu búizt þá og
þegar við að renna aptur niður í gjána, en komu
brátt upp á snjóhrygg, sem var þverhnýptur og 60
feta hár hægra megin, og komust eptir honum upp
að austustu þúfunni, eptir mælingu þeirravar hæðin
þar 4460 fet yfir sævarfiöt; lengra komust þeir ekki
fyrir stórkostlegri sprungu. Útsjón hölðu þeir litla,
því alltaf var þokan að færast nær, svo þeir þorðu
ekki að standa við nema stutta stund til þess að
geta komizt yfir snjóbrúna áður en þokan kom þang-
að; ferðin gekk allvel niður, þó var annar Englend-
ingurinn rétt dottinn gegnuni snjóbrúna. Nú rak
yfir þá blindþoka, en þeim tókst þó að klöngrast
niður fjallið og komu þeir til Olafsvíkur kl. 61/*1.
Árið 1815 gekk enn þá einn Englendingur upp
á Snæfellsjökul; það var Ebenezer Henderson,2 hann
för frá Stapa 25. maí upp með Stapafelli sama veg
eins og þeir John Stanley höfðu farið, með honum
var sonur Hjaltalíns kaupmaims og 3 menn íslenzk-
ir aðrir, þeir gengu upp hraunið sem fallið hefir frá
jöklinum og voru í því víða stórir skaflar, af því
þetta var svo snemma um vorið. Á leiðinni upp á
Jökulháls var hin mesta ófærð; snjórinn varð þó
harðari er ofar dróg, en samt var gangan mjög
þreytandi, þó komu þeir kl. 1 upp að Þríhyrningi,
þar hvíldu þeir sig hálfa stund. Þaðan varð gang-
an greiðari, því brekkan var minni, loptið var hreinna
1) Sir George S. Maclcenzic; Travels in the island. of'
Ioeland. Ed. 2. Edmburgh 1812, bls. 175—180.
2) Ebenezer Henderson: Iceland or the journal af a resi-
dence in that island during the years 1814 and 1815. Edin-
burgh 1818. Vol. II. bls. 37—44."