Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 31
29
rákirnar sem eðlilegt er eptir fjarðarstefnunni til
vesturs. Við læk kippkorn fyrir innan Hi'afnabjörg
¦eru leirbakkar og i þeim skeljabrot, hörpudiskar o.
fl. Þar fram með sjónum eru margbreytilegar lípa-
rítmyndanir og eins i fjöllunum fyrir ofan Sanda;
•eins eru líparítmyndanir allmíklar í Skarðsheiðí upp
af norðvesturendanum á Skorradalsvatni. Norðan i
¦Skarðsheiði austur af Skessuhorni eru brúnirnar mjög
háar og neðan við þær jökull, hjarnskaflar mjög
stórir; í neðstu röndinni á þessum hjarnsköflum sjást
smáar skriðjöklamyndanir og á einum stað er löng
ístota niður eptir gili. Fjallið er vel lagað til þess,
að þar geti haldizt snjór, því þar eru tvær breiðar
kvosir eða daladældir inn í fjallið (Kaldidalur austar
og Hornsdalur vestar). Vesturhluti Skorradalsvatns
kvað vera grynnri en aðrir hlutar vatnsins, víðast
um 12 faðma, en þegar innar dregur er víðast um
20 faðma dýpi og þar fram yfir; sumir segjast ekki
hafa (á stöku stað) náð botni með 70 faðma færi,
¦en óvíst er, hvort satt er; svo mikið dýpi eða meir
:gæti þó vel átt sér stað í þess konar íj'allavatni. Af
Hesthálsi er góð útsjón yfir Borgarfjarðar-láglendið,
mýraflákana, árnar og holtin; fyrir framan mynni
Lundarreykjadals eru háir melbakkar og heflr sjórinn
líklega náð þangaðiupp um lok ísaldarinnar; holtin
¦sem standa upp úr mýrunum hér á láglendinu, eru
•öll úr blágrýti og er það ísnúið. Við beitarhús rétt
fyrir ofan Þingncs gengur stór basaltgangur út i
Grímsá, í honum eru stórar liggjandi súlur og heflr
gangurinn horft flatur við íshreyflngunni, svo hálfar
súlumar hafa núizt af, sýnir þetta meðal annars afi
jöklanna, er gengið hafa niður í Borgarfjörðhm.
Hinn 22. júlí fórum við frá Stafholtsey upp í
Reykholtsdal, til þess að skoða hveri, veðrið var hið