Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 121
III.
Um áfeng-a drykki.
Eptir lækni í Ameríku.
íslenzkað af Matth. Jochumssyni.
¦—-»«——
Mcð því að á mig hefir verið skorað, skal eg nú
skýra frá áhrifum ofdrykkjunnar á heilsu manna,
eins stutt og skiljanlega og mér er unnt, samkvæmt
þekkingu minni og reynslu. Skal eg halda mér helzt
við þau atriði þessa efhis, sem fullsönnuð eru og eng-
inn maður yggir; en minnist eg á. hluti, sem efa-
samir þykja, skal það jafnóðum tekið fram; eins skal
eg geta þess fyrir fram, að þeir höfundar, sem eg
styðst við, eru nafntogaðir menn og í áliti miklu
meðal læknastéttarinnar. Meðal þeirra vá eg nefna
Wm. B. Carpenter, prófessor í fysiologi (líffærafræði)
við háskólann í Lundúnum, 8kandín'avann Magnús
Húsh, Svissann Herman Lebert, og Englendinginn
F. E. Austie. Eg skal strax geta þess, að eg álít
ofdrykkjuna nokkurs konar þjóðsýki, sem menn verða
að vita af hverri rót sé runnin, áður en menn geti
þekkt þau læknislyf, sem við eigi. Að öðru leyti
skal eg ekki skipta mér af lagalegum eða stjórn-
fræðislegum hugleiðingum í þessu efni, né heldur sið-
ferðislegum. Það fel eg öðrum á hendur, þeim sem
færari eru. . -