Menntamál - 01.09.1937, Blaðsíða 78
156
MENNTAMÁL
ur nútíma uppeldis- og kennslufræði, í áttina lil athafnaskól-
ans. Og kennslumálastjórnin og kennararnir yinna markvísf
saman að því aS koma þessari breytingu á í öllu landinu. Er-
indi skólastjóra tilraunaskólanna í Zlin, s'em birtist hér á undan
í íslenzkri þýSingu, gefur allglögga hugmynd um hvert stefnir.
S. Th.
Nýtt bókmenntafélag.
Um þessar mundir er verið að hleypa af stokkunum nýju
bókmenntafyrirtæki í Rvík. Þáð er bókmenntafél. „Mál og
menning". Markmið þessa nýja félags er að gefa úl bæk-
ur um margskonar efni: Skáldrit, sögur og ljóð, frurn-
samið og þýtt, um bókmenntir, sögu, uppeldismál, enn-
fremur ferðarit, alþýðleg vísindarit o. fl. Ilugsar félagið
sér í framtíðinni að geta gefið út 6 bækur á ári fyrir 10
kr. félagsgjald, ef félagatala næst liá, t. d. allt að 3000.
Það mætti margur hugsa, að hér sé verið að bera í
bakkafullan lækinn, með því að liefja slíka útgáfu, þar
sem ýms eldri bókmenntafélög ættu að vera fær um að
yeita þjóðinni nægilegt og golt lesefni. En þá raunasögu
verður að segja, að sum hin eldri fyrirtæki hafa ekki end-
urnýjað sig eða dregið hið nýja lifsanda loft, þess vegna
hrörnað eða staðnað. Nýir þjóðarliættir og ný viðhorf
kynslóðarinnar, krefjast endurnýungar i bókmenntum.
En ýms merk rit, sem áttu igiphaflega að vera alþýðu
eign, hafa á síðuslu timum náð aðeins til minni hluta
þjóðarinnar, vegna þess áð þau hafa lent í stirðnuðum
höndum. Það væri því óskandi, að nýtt bókmennta-
fyrirtæki, sem ætlar sér að vinna að menningu alþýð-
unnar, verði þess megnugt að veita nýjum hressandi
straumi inn í þjóðlífið. Og margt spáir góðu um þetta
fyrirtæki; að því standa ágætir menn, sem mikils má
af vænta. Stjórnina skipa: Halldór K. Laxness, Sigurður