Menntamál - 01.04.1959, Qupperneq 23
MENNTAMÁL
17
almenna deild og 20% menntaskóla deildina. Verknám-
ið skiptist síðan í ýmsar undirdeildir. Þær helztu eru
landbúnaðardeild, hússtjórnardeild, járnsmíða- og vél-
virkjadeild, verzlunardeild og ýmiss konar handíðir og
almenn hagnýt deild.
Allmargir nemendur, sérstaklega þeir, sem velja verzl-
unardeildina og ýmiss konar handíðir (handverk) vinna
þá um það bil helming námstímans í faginu sem lærlingar.
Helzti munurinn á almennu deildinni og menntaskóla-
deildinni er sá, að öll erlendu málin, enska, þýzka og
franska eru skyldunámsgreinar í menntaskóladeildinni,
en valfrjálsar greinar í almennu deildinni, og eru þar
fleiri möguleikar á sviði valfrelsis í námi.
Um það bil 60% af þeim nemendum, sem völdu mennta-
skóladeildar nám 1955—56 höfðu í hyggju að halda áfram
í menntaskóla. Hinir völdu deildina sem lokastig.
Almennt hæfni- og gáfnapróf sýndi, að yfir meðal-
greind nemendanna í 9. bekk voru 91% af nemendum
menntaskóla deildarinnar, 65% af nemendum almennu
deildarinnar, en 29% af nemendum verknámsdeildanna.
1 fámennum skólahéruðum, þar sem nauðsynlegt er að
hafa nemendur menntaskóladeildarinnar og almennu
deildarinnar saman í bekk, eru nemendur menntaskóla-
deildarinnar teknir í aukatíma í móðurmáli, erlendum
málum og stærðfræði. Á stöku stað eru bréfaskólar teknir
til hjálpar. Gerðar eru tilraunir með gagnfræðanám gegn-
um bréfaskóla fyrir dreifbýlið. Nemendurnir, sem annars
búa dreift, koma saman tvisvar eða þrivar í viku í skóla
byggðarinnar og vinna þar, undir handleiðslu kennara eða
annars leiðbeinanda, úr verkefnum, sem miðstöð bréfaskól-
ans sendir út. Á vegum bréfaskólans er svo lokapróf tek-
ið. —Hjálparbekkir og sérdeildir eru starfandi á öllu
gagnfræðastiginu, og er starf þeirra skipulagt samkvæmt
sérstakri námskrá. — Margir getuminnstu nemendurnir
hafa valið verknámsdeildir 9. bekkjar, en rætt hefur ver-