Menntamál - 01.04.1959, Blaðsíða 38
32
MENNTAMÁL
prófi, og það telst með algerum undantekningum, að kenn-
arar með almennu kennaraprófi sæki handavinnukenn-
aranámið. Þó að skólar þessir séu fullskipaðir, er handa-
vinnudeildin auð að nemendum, sem fullnægja inntöku-
skilyrðum, en brautskráðir menn úr íþróttakennaraskól-
anum munu flestir taka stöður án þess að ljúka al-
mennu kennaraprófi. Líku máli gegnir um húsmæðra-
kennara. Almennt kennarapróf er inntökuskilyrði í Hús-
mæðrakennaraskólann, en ekki er hann sóttur af nemend-
um, er þeirri kröfu fullnægja. Þar eð kennaraefni með lög-
boðinni undirbúningsmenntun koma ekki í leitirnar við
framan greint sérnám kennara, hefur verið gripið til þess
ráðs að veita undanþágur frá inntökuskilyrðum, þannig
að frávikið hefur orðið að reglu, en kapp hefur verið lagt
á að bæta það upp með kennslu, sem á vantaði, að inntöku-
skilyrðum væri fullnægt.
Rétt til að hefja almennt kennaranám og setjast í fyrsta
bekk Kennaraskólans veitir miðskólapróf bóknámsdeild-
ar með þeirri lágmarkseinkunn, sem ákveðin er í reglu-
gerð. Þeim, sem búa sig ekki undir almennt kennarapróf,
heldur smábarnakennslu, kennslu í sérgreinum eða upp-
eldisstörf önnur en kenslu, veitir miðskólapróf verknáms-
deildar einnig sama rétt með sams konar takmörkunum.
Síðan þessi ákvæði tóku gildi, hefur Kennaraskólinn
aldrei verið fullskipaður mönnum með lögboðinni undir-
búningsmenntun, en undanþágurnar hafa hins vegar ver-
ið undantekning við hið almenna kennaranám, en ekki
regla, svo sem í sérskólunum.
Hér ganga liðirnir jafnt fram, kennaraskólarnir skip-
ast mönnum, sem fullnægja ekki inntökuskilyrðum, og
kennarastöður eru skapaðar mönnum, sem fullnægja ekki
lögboðnum kröfum um menntun.