Menntamál - 01.04.1959, Blaðsíða 80
74
MENNTAMÁL
fyrrahaust fóru til Svíþjóðar og kynntu sér starfsemi þessa,
svo og nokkrir aðrir, sem bættust í hópinn eftir að hafa
verið á síðasta námskeiði.
Þessu ber að fagna. En við gerum ekki nóg, fyrr en
við gerum allt, sem í okkar valdi stendur, fyrir afbrigði-
lega barnið.
Rætt við Jónas B. Jónsson.
Fyrir nokkru barst Menntamálum Skólaskýrsla. Barna-
og gagnfræðaskólar Reykjavíkurbæjar skólaárið 1956-57.
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur, Reykjavík 1958. 78 bls.
Þetta er fyrsta heildarskýrsla, sem gerð er um alla
barna- og gagnfræðaskóla á vegum Reykjavíkurbæjar.
Er þetta því hið merkasta heimildarrit og veitir ljósa vit-
neskju um skólamál höfuðborgarinnar á þessum tíma.
Fræðslustjórinn Jónas B. Jónsson gerir grein fyrir samn-
ingu skýrslunnar í stuttum formála, en meginkaflar skýrsl-
unnar eru: Yfirstjórn fræðslumála Reykjavíkur, skóla-
skylda í Reykjavík, skólar, skólastjórar og kennarar, er
það nákvæmt kennaratal, fjöldi og skipting nemenda,
skólasókn og forföll, kennsla og kennslutæki, próf, m. a.
allmikið af verkefnum og matsreglum, talkennsla, fram-
burðarkennsla, sérkennsla, umferðakennsla, heilsugæzla,
heimavist Laugarnessskóla, heimavistarskólinn að Jaðri,
félagslíf í skólum, bókasöfn, kennaranámskeið — kennslu-
eftirlit, lúðrasveitir barna, vinnuskóli Reykjavíkur, skóla-
garðar Reykjavíkur. Þá eru í skýrslunni margar myndir,