Menntamál - 01.04.1959, Blaðsíða 29
MENNTAMÁL
23
Ef tekiS er meðaltal áranna 1955 og 1957, eru útskrif-
aðir kennarar 34, en nemendaukningin 1216. Við 9 mán.
skóla, er áætlaður fjöldi nemenda, 40 á hvern kennara,
en lækkar um 5 við hvern mánuð, sem skóli stendur skem-
ur. Heimilt er að setja kennara við skóla, ef þannig stend-
ur á tölu nemenda, að fjöldi þeirra fram yfir það, sem
föstum kennara er ætlað, er helmingur, eða meir, fullrar
nemendatölu á kennara. Getur því við sumar aðstæður
orðið að setja kennara fyrir 15 nemendur.
Þar sem mestur hluti nemendaukningarinnar þessi síð-
ustu ár, er í kaupstöðum, hef ég gert ráð fyrir, að 35
nemendur komi að meðaltali á kennara. Nemendaaukn-
ingin var 1216 og þarf því 35 nýja kennara til að séð sé
fyrir kennslukröftum til þeirra nemenda, sem við bæt-
ast, eða einum kennara fleira en Kennaraskólinn heí m
útskrifað.
Með þessu er þó ekki öll sagan sögð. Á árunum 1951—
57 hafa fallið frá, og látið af störfum fyrir aldurssakir
eða af öðrum ástæðum, 8 kennarar að meðaltali á ári.
Þá kemur einnig árlega til framkvæmda fækkun kennslu-
stunda þeirra kennara, sem ná 55 ára og 60 ára aldri, sem
verkar á sama hátt til aukningar á þörfinni fyrir kenn-
ara. Af þessum sökum mun þurfa um 4—6 kennara árlega.
Enn kemur það til greina, að nokkrir þeirra, sem ljúka
kennaraprófi, hefja aldrei kennslu og aðrir hætta eftir
nokkur ár.
Árið 1940 útskrifuðust t. d. 42 kennarar, fimm árum
síðar eru 32 þeirra í starfi og eftir tíu ár 31. — Af 27
kennurum útskrifuðum 1944 eru 25 í starfi 1950 og 1955
aðeins 19. Flestir kennaranna, sem ekki hefja kennslu, eða
láta fljótlega af störfum, eru konur, er gerast húsmæður
og hafa þá ekki lengur tíma eða aðstöðu til að vinna utan
heimilis. Á síðari árum stunda fleiri konur en karlar nám
við Kennaraskólann, og hefur hlutfallstala kvenna þar
stöðugt farið hækkandi. Má því búast við, að tala þeirra