Menntamál - 01.04.1959, Qupperneq 36
30
MENNTAMÁL
er ríkan hlut eiga í atvinnu- og viðskiptalífi, saman á ráð-
stefnu í Köln, til þess að lýsa yfir fulltingi sínu við upp-
eldismálin. Stofnuðu þeir félag um málið, September-
félagið. Á nafnið að benda til þess, að engin flokkspóli-
tísk viðhorf ráði sjónarmiðum. — Af líkum toga spunn-
in er samvinna sú, er lýst var í síðasta hefti Mennta-
mála um skólasýninguna í London á næsta vori.
Þá má geta þess, að Efnahagssamvinnustofnun Evrópu
hefur þegar hafið skipulegt starf til að efla viðhalds-
menntun kennara, einkum í náttúrufræði og stærðfræði.
Er um þessar mundir unnið að framtíðaráætlun um skip-
an þeirra mála. Menntun og mönnun kennara er varan-
legt viðfangsefni UNESCO, og um mánaðamótin febr.—
marz mun stofnun samtakanna í Hamborg eiga ráðstefnu
um þessi efni með kennurum frá ýmsum löndum.
Þannig er kannað um allar jarðir, hvernig beztir og
flestir kennarar fást til starfa.
Ábyrgð löggjafans og fræðslumálastjórnarinnar.
Skammt er liðið frá því að margir ágætir menn keppt-
ust um að tjá íslenzkum skólum þakklæti sitt, minnugir
hálfrar aldar afmælis fræðslulaganna frá 1907. Það er
einnig sannfæring mín, að þjóðir eigi ekki meira undir
annarri löggjöf en fræðslulöggjöfinni. Hinu trúi ég, að
vart sé íhlutun íslenzka ríkisvaldsins um einkahagi ann-
ars staðar meiri en markað er með ákvæðum um fræðslu-
skyldu. Af henni leiðir, að svo til hvert barn í landinu er
í framkvæmdinni skuldbundið til að stunda nám í ákveðn-
um skóla, í ákveðinni stofu, á áveðnum tíma, hjá ákveðn-
um kennara í ákveðnu samfélagi annarra barna. Að vísu
geta foreldrar borið fram óskir sínar, og skólastjórar og
kennarar munu yfirleitt fúsir að taka þær til geina, eftir
því sem unnt er, en úrræði hljóta jafnan að markast
af þeim kostum, sem fyrir eru á hverjum stað og tíma,