Menntamál - 01.04.1959, Blaðsíða 24
18
MENNTAMÁL
ið um að gefa þeim frekar kost á námi sem yrði sniðið
við þeirra hæfi sérstaklega. Reynslan hefur sýnt, að
margir unglinganna eru ekki ákveðnir í, hvaða lífsstarf
þeir helzt vilja velja sér, er þeir þurfa að ákveða, hverja
af deildum 9. bekkjar þeir velja og er því talið eðlilegt
að gefa þeim kost á almennu hagnýtu námi, sem ráðgert er
að tengja almennu deildinni frekar en verknámsdeildinni.
Síðustu árin hafa athyglisverðar tilraunir verið gerð-
ar í sænskum skólum um nýja starfstilhögun m. a. í sam-
bandi við nýjar námskrár. Sérstaklega hafa námsgrein-
arnar móðurmál og félagsfræði verið teknar til athugun-
ar. Bókasafnið og bókin, sem handbók og heimildarrit,
má sín nú meir en áður. Félagsfræðin er nú orðin ein af
aðalnámsgreinum sænskra skyldunámsskóla. Gerðar eru
tilraunir með nýjar leiðir í reiknings- og stærðfræði-
kennslunni, þar sem m. a. er verulega dregið úr náms-
kröfum í tilraunaskyni og aðferðum breytt. í tungumála-
kennslunni er nú meiri áherzla lögð á talað mál, æfingu
í hagnýtri notkun málsins.
Svipuðu máli gegnir um flest lönd Evrópu í þessum efn-
um. Fjölþætt nýsköpunarstarf í skólamálum hefur einn-
ig átt sér stað á undanförnum árum í löndum Mið- og
Vestur-Evrópu, t. d. Belgíu.
Þar er öðru fremur tvennt, sem örvað hefur þróun
þessara mála. Annars vegar vaxandi velmegun þjóðar-
innar, sem m. a. hefur haft í för með sér stóraukna að-
sókn að framahldsskólum og æðri skólunum. Hins vegar
er jarðvegurinn frjór — nýjungum á þessu sviði er vel
tekið. Skólaskyldan í Belgíu er 8 ár frá 6 ára aldri til
14 ára aldurs. Rætt er um lengingu skólaskyldunnar og
skipulagningu bernsku- og æsku-áranna þrjú og þrjú ár
fyrir sig, þar sem sami leiðbeinandinn eða kennarinn
fylgir nemendunum sem aðalkennari í þrjú ár í senn.
Fyrstu 3 árin — frá fæðingu til þriggja ára aldurs — eru
börnin í heimahúsum og algjörlega undir handleiðslu for-