Æskan - 01.07.1971, Blaðsíða 51
E/S INGÓLFUR
Smiðað i Haarlem i Hollandi árið 1919. Eimskipafélaglð Isa-
fold keypti skip þetta í Hollandi árið 1934, og hét það áður
Amstelstroom. Við eigendaskiptin hlaut það nafnið Edda og var
lengi vel stærsta skip islenzka flotans.
Edda kom fyrst hingað til landsins 2. maí 1934 undir stjórn
Jóns Kristóferssonar skipstjóra. Skipið var málað Ijósgráum lit
með brún-hvíta yfirbyggingu og hafði bókstafinn í fyrir reykháfs-
merki. Fyrstu árin var skipið að mestu í Evrópuferðum, þ. á m.
til Ítalíu og Spánar. í þeim ferðum kom Edda oft við í Túnis og
Marokkó í Norður-Afriku. Eftir að styrjöldin skall á árið 1939 hóf
Edda Ameríkusiglingar og fór nokkrar ferðir sem leiguskip Eim-
skipafélags íslands. Á árinu 1941 keypti svo Eimskipafélag is-
lands skipið og hlaut það þá nafnið Fjallfoss. Fjallfoss sigldi síðan
til Ameríku öll stríðsárin og hélt þeim ferðum áfram þangað til
að Tröllafoss kom til sögunnar árið 1948. Einnig var skipið í
ferðum tii Bretlands, Belgíu, Hollands, Þýzkalands, Póllands og
Norðurlandanna allt til ársins 1951. Flestar sjómílur lagði Fjall-
foss að baki árið 1943 eða 35.481. ítalir keyptu svo þetta happa-
sæla skip fyrir 1.371 þús. krónur, og var Fjallfoss afhentur þeim
í Kaupmannahöfn i maílok árið 1951.
Fjallfoss þótti vandað og afburðagott sjóskip, enda smíðaður
til Austurlandaslglinga (Jövu) fyrir Hollendinga. Síðast munu ís-
lenzkir sjómenn hafa fregnað af skipi þessu í flota Nassers i
Egyptalandi fyrir nokkrum árum.
ge ufuskipafélagið Faxaflóabáturlnn hf. lét smíða sklp þetta í
^6r9en í Noregi árið 1908, og var þetta fyrsta skipið, sem is-
Hdingar létu smíða, er ekki var ætlað til fiskveiða. Ingólfur kom
:/St ^ingað til Reykjavíkur þann 8. maí 1908 undir stjórn Sigur-
^ ns P- Jónssonar skipstjóra. Stærð skipsins var 126 brúttórúml.
669d: 99 2 fe, Breidd. 18 6 fet Dýpt; 10ii fet.
hr Sr^e9arými var fyrir 100 farþega á tveim farrýmum og gang-
' Var um 8>8 sjómllur. Kaupverð skipsins var 66 þús. krónur.
bag11 •*' mai ,or in9°^ur sv0 ' fystu ferðina hér innaniands, var
sér ^e,iavii<ur °9 munu á fjórða hundrað manns hafa teklð
r ^ far með skipinu.
en n^°ltur var síðan í ferðum um Faxaflóa fram til ársins 1918,
hefg^ Var® skipið fyrlr alvarlegri vélarbilun, sem talið var að
Sk' • 0rsal<azt af Þeim miklu frosthörkum, er þá gelsuðu hér.
Ipi® var síðan selt til Noregs á árlnu 1919.
E/S FJALLFOSS
80gtalskiP með 1400 ha. gufuvél. Stærð: 1451 brúttórúml. og
10ne,tórúm|. 2060 DW lestir. Aðalmál: Lengd: 82,90 m. Breidd:
’ 9 m- Dýpt: 5,12 m. Ganghraði: 10—12 sjómíiur.
Þar sem myndir af sumum skipanna fyrr í þessum þáttum voru
ekki nægilega góðar, er nú í ráði að bæta úr þessu í næstu
blöðum. Verða birtar betri myndir, sem þættinum hefur tekizt að
afla. Þá erum við því fólki þakklátir, sem á gamlar myndir og
vildi lána þær í blaðið. Hér kemur þá fyrst mynd af Goðafossi 2.
í erlendri höfn, líklegast Kaupmannahöfn, á árunum 1921—30.
Sjá lýsingu af Goðafossi 2. í jólablaðinu 1970.
51