Valsblaðið - 24.12.1969, Qupperneq 13

Valsblaðið - 24.12.1969, Qupperneq 13
VALSBLAÐIÐ 11 flokknum taki sem virkastan þátt i slíkum heimsóknum, sem og þeir gerðu með miklum ágætum. I landsleikjum og úrvalsleikjum léku eftirtaldir menn: Landsleikir: Þorsteinn Friðþjófs- son, Hermann Gunnarsson, Sigurð- ur Dagsson, Reynir Jónsson. I'Jrvalsleikir: Sigurður Dagsson, Þorsteinn Friðþjófsson, Ingvar Elís- son, Hemiann Gunnarsson, Halldór Einarsson. Ljósin: Nokkrum ljósum var bætt við. Fyrsti leikurinn í ljósum var háður i vetur milli Vals og Víkings. Jónsbikarinn var afhentur í 6. sinn nú og hlaut 5. flokkur hann að þessu sinni. Fundir: Nokkrir fundir voru haldnir með flokkunum, sýndar myndir og rætt við piltana. Fundir M1 1. og 2. flokks voru nokkuð reglulega. Nýjungar: Stjórn deildarinnar heiðraði leikmenn og þjálfara m.fl. vegna frammistöðu þeirra i leiknum við Benfica og voru þeim veitt verð- launin á.árshátíð félagsins í apríl s.l. Stjórn deildarinnar samþykkti á s.l. ári að hefja veitingu á verðlauna- peningum og verðlaunaskjölum til handa keppendum Vals, sem ynnu mót í hinum ýmsu flokkum, þannig að verðlaunapeningar voru veittir fyrir unnið landsmót og viðurkenn- ingarskjöl fyrir unnin önnur mót. Á afmæli félagsins 11. maí s.l. var Islandsmeisturum 3. fl. 1968 afhent- ir verðlaunapeningar. Viðurkenningaskjöl voru afhent á fundi með flokkunum nú í haust og hlutu keppendur í 2. fl. B og 5. fl. A, B og C þau. Þá telur stjórnin rétt að veita við- urkenningu fyrir ákveðinn leilcja- fjölda með m.fl. félagsins og telur eðlilegt að byrjað verði á þessu á 60 ára afmæli félagsins 1971. Dvalizt var á Laugarvatni dagana 8.—10. ágúst í íþróttamiðstöð ISÍ við æfingar og leiki. Voru í hópnum 18 leikmenn M. og 1. flokks, auk þjálfara og nokkurra stjórnarmeð- lima deildarinnar. Flestir höfðu með sér eiginkonur sínar og börn. Dval- izt var í góðu yfirlæti hjá húsráð- anda Höskuldi Goða og ráðskonum hans. Greinilegt er að slíkar ferðir eru mjög gagnlegar. Mjög er athug- andi að fara með yngri flokka félags- ins á slíkan stað til æfinga og leikja. V. FLOKKUR C: Aftari röS f. v.: Elías Hergeirsson, Hilmar Hilmarsson, Magnús Erlingsson, Þorsteinn Gunnarsson, Ingimundur Guðmundsson, Bjarni Hjartarson, Trausti Sverrisson, FriSrik Egilsson, Hafsteinn SigurSsson og Helgi Loftsson. Fremri röS f. v.: Ásmundur Björnsson, Sœvar Jónsson, Svanþór Þorbjörnsson, ViSar Helga- son, Björn Jónsson, Brynjar Níelsson, SigurSur SigurSsson. Dómaramál: Erfiðleikar í dómara- málum leiddu til þess að stjórnum knattspymudeildanna í Reykjavík var falið að útvega dómara á alla B og C-liðs leiki. Þurfti stjórnin að útvega dómara á um 20 leiki og gekk ágætlega. Færir stjórnin þeim sem dæmdu fyrir Val beztu þakkir fyrir hjálp þeirra. Getraunir: Frá því að getraunir hófust hefur deildin dreift og safn- að saman getraunaseðlum og hefur salan gengið framar vonum. Með sama áframhaldi verða fjármálin auðveldari viðfangs. Öllum þeim sem selja getraunaseðla fyrir Val eru færðar beztu þakkir og er von- andi að við fáum að njóta hjálpar þeirra sem lengst. Innanhússknattspyrna: Valur tók þátt i 3 mótum innanhúss. 50 ára afmælismóti KRR. Valur varð sig- urvegari. Islandsmót innanhúss var nú haldið í fyrsta sinn og lék Valu til úrslita við Akranes og tapaði 4:3. 20 ára afmælismót Þróttar, þar tap- aði Valur í úrslitaleik við IBK 2:1. LOKAORÐ Stjórnin vill þakka öllum þeim mörgu sem aðstoðuðu hana á einn eða annan hátt. Sérstakar þakkir eru færðar til þjálfara flokkanna, sem allir þjálfuðu af áhuga og árvekni. Ánægjulegt er að við skulum enn njóta starfskrafta Róberts og Lárus- ar og er vonandi að þeir sjái sér fært að þjálfa áfram fyrir Val. Árna Péturssyni og frú eru færðar beztu þakkir fyrir góða umhirðu á bún- ingum félagsins fyrir M. og 1. flokk. Ýmislegt hefði eflaust mátt betur fara en vonandi sæmilega til tekizt. Nauðsynlegt er að geta dreift starf- inu meira en nú er, því starfið eykst sífellt, Valur er alltaf að stækka og því köllum við á fleiri til starfa, því margar hendur vinna létt verk. Að lokum þetta, hjálpumst til að gera veg Vals sem stærstan. örlygur Hálfdán örlygsson heitir hann þessi ungi maSur, átti aS vera á mynd meS fjórSa flokki, en tafSist hjá lækni, og var búiS aS taka myndina augna- bliki áSur en hann kom, og þegar taka átti aSra mynd af flokknum og honum meS, bilaSi myndavélin. Vonum aS honum sé þaS svolítil sárabót aS koma þó meS 1 ValsblaSinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.