Valsblaðið - 24.12.1969, Side 75

Valsblaðið - 24.12.1969, Side 75
VALSBLAÐIÐ 73 hafa að lesa alla leið hingað, væru farnir að spyrja hvort ekki hefði ver- ið um keppnisferðalag að ræða. Var ekki spilaður fótbolti eða hvað, ha? Því er til að svara, að samkvæmt gömlum og góðum sið hef ég rús- ínuna í pylsuendcmum. Rúsínuna, já. Því þótt markatölur séu ef til vill ekki það sem mestu máli skiptir fyrir þá, sem voru þátttakendur, eru þær óneitanlega sú hlið sem snýr að öðr- um Valsfélögum. PUNKTAR UM LEIKINN Fyrsti leikurinn var gegn félag- inu Hörsholm og fór hann fram á einum af grasvöllum Lyngby Bold- klub. Fyrir leikinn höfðmn við litla vitneskju um styrkleika mótherjanna, þóttumst aðeins vita, að þeir myndu veikastir af væntanlegum keppinaut- um. Strax og leikurinn hófst kom í ljós tillitssemi þeirra Lyngbæjara. Við áttum ekki að fara sigurlausir heim. Þessir Hörshólmarar voru nefnilega vægast sagt lélegir knatt- spymumenn og langt frá því að þeir tækju leikinn alvarlega. Sér- staklega veitti ég því atygli, hve þeir voru hirðuleysislega klæddir; búningarnir óhreinir og slitnir. Er ekki að orðlengja það, að Valsmenn réðu lögum og lofum á vellinum, enda létu mörkin ekki á sér standa. Lokatölur urðu 13:1. Mörkin gerðu: Undirritaður 7, Hans Herbertsson 3, Bergur Garðarsson 2 og Torfi kapt- einn Magnússon 1. Næsti leikur var svo tveim dögum siðar á sama stað og hófst í hita- svækju, sem háði okkar mönnum nokkuð. I þetta sinn var leikið gegn jafnöldrum okkar í Lyngby Bold- klub. Þó Danirnir tefldu ekki fram sínu bezta liði fannst mér þeir sterk- ari aðilinn. Þeir gáfu boltann fljótt, vel og ákveðið og voru síðan komnir af stað um leið og þeir fengu hann. Einnig voru þeir yfirleitt líkamlega sterkari og áttu betri skotmenn, enda þótt markskot dagsins væri Vals manns. Ég gizka á 30 m. færi og staðsetningin var óskadraumur allra knattspyrnumanna: Samskeytin— inn! Leikum lauk með sigri Dan- anna, sem gerðu 5 mörk gegn 3 mörk- um Vals. Fyrir Val skoruðu Jóhann- es Eðvaldsson (samskeytin—inn), Ingi Björn Albertsson, en eitt markið hefur mér ekki enn tekizt að feðra. Þrátt fyrir tapið áttum við alls ekki lélegan leik, þvert á móti óvenju góðan baráttuleik. Mótherjarnir voru bara óvenju góðir. Annað var uppi á tengingnum í þriðja leiknum, sem var gegn félagi í nágrenni Lyngby, nánar tiltekið í Virum. Þar var leik- ið á grasvelli, sem að vísu var ekki eins sléttur og sá á Lyngby Stadion, en góður á íslenzkan mælikvarða. Einn galli var þó á gjöf Njarðar, sem sé sá, að línur þær, sem vana- lega er hafðar til að afmarka knatt- spyrnuvelli, virtust illa þekkt fyrir- brigði, að minnsta kosti voru þær mjög óljósar. Nóg um það. Leikur- inn hófst, og er skemmst frá því að segja, að allt gekk á afturfótunum. Mikill losarabragur var á leik liðs- ins og sambandsleysi milli leikmanna ásamt grátbroslegum varnarmistök- um og lamandi baráttuleysi gerði það að verkum að úrslitin urðu þau sömu og síðast 5:3, en gegn áberandi lé- legra liði. Ekki hef ég neina patent- lausn til að koma í veg fyrir svona öldudalsleiki, né áþreifanlega skýr- ingu á því hvers vegna þeir eiga sér stað, en svo fremi að menn reyni að læra af reynslunni ættu slíkir leikir að stuðla að útrýmingu sinna líka. Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott. Mörkin gerðu: Þórir Jónsson, Jóhannes Eðvaldsson og Garðar Kjartansson. Nújæja. Minnugir þessarar miður góðu frammistöðu héldum við til síðasta leiksins í förinni ákveðnir í að gera okkar bezta. Ekki myndi af veita, því nú var Lyngby Boldklub með sitt bezta lið í þessum aldurs- flokki, hvers forráðamenn töldu mjög sennilegt að yrði Sjálandsmeistari það árið. Leikið var á grasvellinum góða „heima“ á Lyngby Stadion og við beztu veðurfarslegar aðstæður. Þannig var, að þetta var síðasta dag ferðarinnar og um kvöldið átti að halda eins konar kveðjuhóf fyrir okkur. Þótti okkar ágætu fararstjór- um tilhlýðilegt að halda ræðu við það tækifæri, til þess meðal annars að þakka gestgjöfunum fyrir móttök- urnar. Áður en leikurinn hófst sett- ust þeir því niður og skrifuðu ræðu, því þrátt fyrir fimi sína í dönsku treysti Róbert sér ekki til að tala blaðalaust. Varla var hægt að ræða ferðina án þess að minnast á úrslit leikja og gerðu þeir sér lítið fyrir og festu á blaðið tap í 3 leikjum, en einn sigur. Sem betur fór neyddust þeir til að breyta þessu, að visu ekki snúa því alveg við, en hver er ekki ánægð- ur þegar hann stendur sig framar vonum? Við vorum meira að segja sigri hrósandi. Leiknum lauk sem sé með jafntefli, 2:2. Hörður Hilm- arsson gerði bæði mörkin fyrir Val. Knattspyrnulega er ferðin á enda og frammistaðan kannski ekkert til að státa af, en langt frá að þurfi að skammast sín fyrir hana, eins og títt er um samskipti íslenzkra íþrótta- manna og erlendra. Eftir vel heppnað en of stutt kveðjuhóf var háttað í síðasta sinn í bili á flatkökupartinum, sem sag- an segir að Gefjun hafi skorið með plógi sínum af ríkisköku Svíþjóðar og plantað þarna norður af Þýzka- landi. Um morguninn er lagt var upp, kvöddum við vini okkar í Lyng- by Boldklub, en einnig aðeins um sinn, því þeir voru væntanlegir til Islands að viku liðinni. En hvað það var nú þægileg tilfinning! Ef ég ætti að lýsa ferðinni með einu orði myndi ég segja: Lærdómsrík. öllum þeim, sem gerðu ferðina mögulega, þakka ég vel. SigurSur Jónsson. Sigrún Gu&rnundsdótíir er án efa ein „skot- harSasta“ í íslenzkum kvennahandbolta í dag, enda gœti hver A-landsliSsmaSur veriS hreykinn af „stílnum“ á meSfylgjandi mynd.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.