Valsblaðið - 24.12.1969, Side 5
VALSBLAÐIÐ
3
- STARFIÐ ER MARGT -
ÚR SKÝRSLU AÐALSTJÓRNAR:
Hér á eftir verður drepið á nokkra
þætti félagsmála Vals á starfsárinu,
sem er að líða og aðalstjórnin hefur
látið sig skipta, sérstaklega.
En stjórn félagsins var öll endur-
kjörin á aðalfundi þess, sem hald-
inn var 12. marz s.l. Hana skipa
þessir félagar: Ægir Ferdinandsson
formaður, Friðjón Friðjónsson vara-
formaður, Einar Bjömsson ritari,
Þórður Þorkelsson gjaldkeri, Jón
Kristjánsson bréfritari. Þá voru for-
menn deildanna sjálfkjörnir í aðal-
stjórnina. Hefur sá háttur verið við-
hafður undanfarin ár. En allt hið
umfangsmikla starf innan Vals fer
fyrst og fremst fram innan deild-
anna, sem nú eru þessar: Knatt-
spyrnudeild, Handknattleiksdeild,
Skiðadeild og Badmintondeild. Sam-
starfið milli aðalstjórnar og deildar-
stjórna hefur á þessu starfsári, sem
endranær, verið með ágætum. Hef-
ur aðalstjórnin, svo sem er skylda
hennar, veitt deildunum alla þá að-
stoð, sem hún hefur mátt og leitað
hefur verið eftir. Formenn deildanna
voru á kjörtímabilinu: Elías Her-
geirsson, Knattspyrnudeild, Þórar-
inn Eyþórsson, Handknattleiksdeild,
Stefán Hallgrimsson, Skíðadeild og
Páll Jörundsson, Badmintondeild, en
á aðalfundi deildarinnar, sem hald-
inn var 11. sept. s.l. óskaði Páll að
láta af formennsku og í hans stað
Vár kjörinn formaður Sigurður
Tryggvason.
Eitt viðamesta mál, sem fyrir að-
alstjórnina bar á starfsárinu, var
stækkun Hliðarenda-landsins. Með
bréfi, sem lagt var fyrir stjórnar-
fund hinn 28. april s.l. og samþykkt
þar og síðan sent Borgarráði, var
fyrsta skrefið stigið til stækkunar
Hlíðarendalands, með fjölgun
íþróttavalla fyrir augum og bætta
aðstöðu til íþróttastarfsemi á annan
hátt. Stjórnin hefur síðan unnið lát-
laust að máli þessu.
Þá hófst getraunastarfsemin á ár-
inu á vegum iBR, KSl og ISl, svo
sem kunnugt er. En félög innan ISl
gátu tekið að sér umboðsstarf fyrir
þær. Trúnaðarmaður Vals í þessu
sambandi var kjörinn Friðjón Frið-
jónsson varaformaður.
Samþykkt var að deildirnar ann-
ist, hver fyrir sig, sölu miðanna og
hljóti ágóða (sölulaun) eftir því,
hversu duglegar þær eru við söluna.
En þó skal sala sú, sem fram fer í
sælgætissölunni í íþróttahúsinu eða
ágóði hennar, renna til greiðslu á
sameiginlegum kostnaði við fram-
kvæmd getraunanna af Vals hálfu.
Ekki verður annað sagt en starfsemi
Vals að þessu máli hafi gengið vel
undir öruggri forsjá Friðjóns.
Að venju var „opið hús“ að Hlíð-
arenda hinn 11. maí, stofndag Vals.
Eins og jafnan áður kom margt fólk
í heimsókn til Vals þennan dag. Á
fundi aðalstjórnar hinn 28. apríl var
samþykkt í einu hljóði að gera And-
reas Bergmann að heiðursfélaga Vals,
fyrir langt og dyggilegt starf að mál-
efnum félagsins En Andreas hefur
komið mjög við sögu Vals á liðnum
áratugum og lagt gjörva hönd á
flesta þætti félagsstai'fsins. Verið
jafnan þar í fylkingarbrjósti sem
þörfin var mest á hverjum tíma. Til-
kynnt var um samþykkt stjórnar-
innar um heiðursfélagakjörið á af-
mælisdaginn, með ræðu formanns
Ægir Ferdinandsson formáSur.
Ægis Ferdinandssonar, sem síðan af-
henti Andreasi heiðursfélagaskír-
teinið. I ræðu sinni rakti formaður
störf Andreasar fyrir félagið á liðn-
mn árum um leið og hann þakkaði
þau og skoraði á aðra Valsmenn, að
taka Andreas til fyrirmyndar í marg-
þættum félagsstörfum, þar sem óeig-
ingirni og árvekni sætu í fyrirrúmi.
Þá þakkaði Andreas með ágætri ræðu
þann heiður, sem honum væri sýnd-
ur með þessu.
I fyrra var í fyrsta sinn efnt til
svonefnds Valsdags, sem tókst mjög
vel. Var það í ágústmánuði, sem
hann var hafður. 1 ár var þessi dag-
ur hafði í annað sinn og í sama
mánuði og með svipuðu sniði. Tókst
og vel, en hins vegar voru veður-
guðirnir ekki eins vinsamlegir nú og
í hið fyrsta skipti. Því veðrið að þessu
sinni var eins óhagstætt og það var
hagstætt í fyrra. En þrátt fyrir það
fór dagurinn fram samkvæmt áætl-
un. Á öðrum stað í blaðinu er skýrt
nánar frá deginum.
Undanfarið hefur verið rætt um
það að gefa út dálítinn bækling um