Valsblaðið - 24.12.1969, Side 66
64
VALSBLAÐIÐ
Þeir ungu hafa orðið
Á undanförnum árum höfum viS í þessum þœtti gefið þeim ungu or'öið,
og þá aðallega þeim, sem hafa komið fram sem fulltrúar félagsins á leik-
velli, þ. e. fyrirliSum eða vara-fyrirliÖum.
Oftast hafa þeir margs að minnast frá fyrstu árum sínum í knattspyrn-
unni. Þeir hafa líka sínar skoðanir á málum, og sumir setja þær skemmti-
lega fram, og eru ekkert hikandi við það áS benda á þáð, sem betur mœtti
fara og snertir þá og þeirra sveitir.
Knattspyrnumennirnir ungu hafa þetta að segja:
Guðmundur Þorbjörnsson, fyrir-
liði í 5. flokki A, íz ára:
V : ■
l J
Ég gerðist féiagi í Val, þegar ég
var 7 ára. Þá átti ég heima á Berg-
staðastígnum, svo það var svo stutt
að fara á leiksvæði. Ég hélt með Val
löngu áður en ég gekk í félagið. Við
strákarnir þama í kringum mig
stofnuðum strákafélag og fékk það
nafnið „Stjarnan“. Við kepptmn svo
við önnur strákafélög, og man ég
t. d. eftir félagi sem hét „Glanni“
og kepptum við oft við þá, og einnig
man ég eftir öðru félagi, sem hét
„Þruman". Fóru þessir leikir fram
ýmist á Valssvæðinu eða á Háskóla-
vellinum.
Ég hef líklega verið 7 eða 8 ára,
þegar ég keppti fyrsta leikinn með
Val. Var það í C-liði 5. flokks og
kepptum þá við KR. Ég var hak-
vörður í það sinn, var dálítið tauga-
óstyrkur og kveið fyrir því, hvernig
þessu mundi reiða af. Þetta hefur
víst allt gengið vel, því ég man ekki
eftir úrslitum leiksins.
Þetta var mjög „spennandi“ að
fara í Valsbúning og keppa, svona
í fyrsta sinn, og það hefur alltaf
verið gaman að keppa.
Nú hef ég um alllangt skeið verið
innherji, og í fyrra skoraði ég fyrsta
mark mitt, í leik móti Þrótti, og skor-
aði í þeim leik tvö mörk. Það var
einkennileg tilfinning, sem maður
fékk, þegar maður horfði á eftir
knettinum í markið. 1 sumar hef ég
verið heppirm og skorað 11 mörk alls.
Eiginlega hafa allir leikimir verið
skemmtilegir, en einna eftirminni-
legastur var leikurinn í Vestmanna-
eyjum í Islandsmótinu. I hálfleik
höfðum við 1:0, og lékum þó á lak-
ara markið. Við vorum því bjart-
sýnir með síðari hálfleik. En svo er
það einu sinni í síðari hálfleiknum,
að Vestmannaeyingur er með knött-
inn utarlega á vítateignum og ætlar
að spyrna fyrir markið, en Valsmað-
ur er fast við hann og spyrnir hann
knettinum á handlegg varnarmanns-
ins, en dómarinn dæmir vítaspyrnu
á okkur. Þetta fannst okkur órétt-
látt og ekki rétt túlkun á lögunum,
en við þessu var ekkert að gera, og
við töpuðum þannig 2:1. Hefðum
við sigrað í þessum leik hefðum við
komizt í úrslit og höfðum því líkur
til að vinna, því ég held að Vest-
mannaeyingar hafi verið mun sterk-
ari en liðið sem var í úrslitum, enda
unnu Vestmannaeyingarnir í úrslita-
leiknum.
Það var mikill áhugi meðal strák-
anna í sumar, en þjálfari var Helgi
Lárusson og féll okkur vel við hann.
Það er góður félagsandi í fimmta
flokki og í fyrravetur voru haldnir
nokkrir fundir og fannst mér þeir
skemmtilegir, og svo var lokafund-
urinn — uppskeruhátíðin — um
daginn skemmtileg, en mér fannst
að það hefði átt að halda fundi í
sumar með okkur strákunum til þess
að ræða um knattspymuleikina og
annað, sem við hefðum gott af að
ræða um, en þá var enginn fundur
haldinn.
Ég er ánægður með aðstöðuna hjá
Val og ánægður með árangurinn í
sumar hjá 5. flokki. Sá flokkur var
stigahæztur í keppninni um „Jóns-
bikarinn“, fengum 10 stigum meira
en næsti aldursflokkur í félaginu,
sem ég held að hafi verið annar
flokkur.
Ég held, að 5. fl. A. verði góður
næsta sumar, en þó því aðeins að
þeir æfi vel og haldi vel saman.
Guðmundur Kjartansson, 10 ára,
fyrirliði í 5. fl. B:
Við í fimmta flokki B unnum Mið-
sumarsmótið í sumar. Ég var ýmist
miðherji eða innherji. I sumar skor-
aði ég fyrsta markið, sem ég hef
skorað í keppni og var það í leik við
Víking í Reykjavíkurmótinu. Mér
þótti gaman að skora þetta mark,
en síðan hef ég skorað nokkur mörk.
Skemmtilegasti leikurinn, sem ég
tók þátt í í sumar, var í Miðsumars-
mótinu við KR. Við skoruðum fyrsta
markið og það var dálítið skemmti-
legt. Það er skotið að marki KR, og
lét vamarmaður KR knöttinn fara
framhjá sér og var hann á leið útaf
framhjá markinu, og gerði varnar-
maðurinn víst ráð fyrir að mark-
maðurinn tæki knöttinn, en það
gerði hann ekki. Ég hljóp eins og
ég gat til að reyna að ná knettinum
áður en hann færi útaf og tókst á síð-
asta augnabliki að ná til hans og
stýra knettinum inn í markið fyrir
aftan markmanninn. Svo jafna KR-
ingar og þá bjóst ég við að allt væri
búið fyrri okkur, KR-ingar myndu
vinna. Við sækjum þó við og við.
og svo er dæmd vítaspyrna á KR.