Valsblaðið - 24.12.1969, Blaðsíða 19
VALSBLAÐIÐ
17
það í hlut M.K. 31 að þiggja það boð
okkar. Sett var nefnd í málið, sem
sá um alla skipulagningu og móttök-
ur liðsins. Tókst þetta allt mjög vel
og er nefndinni hér með þökkuð mjög
góð störf við heimsókn þessa. Hagn-
aður af heimsókninni varð heldur
minni en gert var ráð fyrir, enda eru
þessar vorheimsóknir alltaf dálítið
varasamar, þvi hér eru orðin svo
mikil samskipti við erlenda aðila á
öllum sviðum, svo sem landsleikir,
Evrópuleikir og annað. Danirnir
voru mjög ánægðir með dvölina og
óskuðu eftir því að þeir mættu á ein-
hvern hátt endurgjalda þessar
óglejonanlegu stundir. Þeir léku hér
fjóra leiki við eftirtalda flokka:
Nú í septembermánuði gerði
meistaraflokkur karla víðreist og
smelltu þeir sér í keppnisferðalag til
Danmerkur og voru þar undir vernd-
arvæng M.K. 31. Ferðin var farin
á piltanna kostnað og voru þeir með
ýmsar fjáraflanir. Ferðin tókst mjög
vel og var bæði íþróttalega og félags-
lega til mikils gagns fyrir þátttak-
endur.
Þrekmælingar.
Eins og áður er vikið að í skýrslu
þessari þá voru teknar upp á árinu
reglubundnar þrekmælingar á meist-
ara- og 1. flokki karla. Aðalhvata-
maðurinn að þessu, svo sem mörgu
öðru mikilvægu, var Jón Kristjáns-
son. Kapparnir voru mældir þrisvar
sinnum á tímabilinu og var greini-
legt strax í byrjun, að menn skipt-
Hér hefur Snorri fundiS
leiSina aS markinu, en
Björn er ekki á því aS gefa
neitt eftir og tekur síSasta
úrrœSiS. Helgi híSur og
vonar.
ust i tvo hópa gagnvart mælingum
þessum. Annar hópurinn var mjög
spenntur fyrir því að fá tækifæri til
að geta fylgzt með því á ótvíræðan
hátt, hvernig þróunin væri í stig-
anda æfingastigsins hjá sér persónu-
lega. Er það að sjálfsögðu markmið
mælinganna. Hinn hópurinn, sem
hafði ekki trú á mælingunum, sýndi
það í verki og mætti ekki á mæling-
ar. Þessi siðasttaldi hópur sá svo um
að mælingar þessar gáfu þjálfaran-
um ekki nógu góða heildarmynd á
þann hóp, sem hann hafði til þjálf-
unar.
Eigi að vera eitthvað vit í kerfis-
bundnum æfingum þá verður þjálf-
arinn að hafa eitthvað til að miða við.
Til að spyma við kæruleysi og
leti manna við að mæta í þessar mæl-
ingar ætti það að vera skilyrði til
Á œfingu hjá II. flokki
karla í handknattleik. Sœv-
ar og Snorri sœkja, en Sig-
urSur og Torfi verjast.
að komast í meistaraflokkslið, í það
minnsta að mennirnir hafi áður mætt
i þær þrekmælingar, sem óskað hef-
ur verið eftir hverju sinni. Hjálagt
fylgir svo prentað álit þeirra, er
fylgdust með þrekmælingunum á s.l.
vetri, og er það fróðlegt til lestrar.
Vonandi er að augu þeirra, er æfa,
opnist sem fyrst fyrir gildi þrek-
mælinganna, því eins og íþrótt okkar
er í dag á mælikvarða við það bezta
í heiminum, þá krefst það þess að
menn æfi og æfi og þá sérstaklega
þrekið.
Lokaor'8.
Við sem nú skilum af okkur verk-
um erum þess meðvitandi, að ekki
hefur nógsamlega vel til tekizt hjá
okkur starfið í heild og hefði margt
mátt betur gera. En samt vonum
við það, að það sem við höfum kom-
ið i verk verði deild okkar til heilla.
Við gerðum okkur þegar í byrjun
starfstímabilsins grein fyrir, að deild-
in stóð höllum fæti peningalega, en
ágætlega íþróttalega. Við reyndum
að lagfæra peningahliðina, en það
hefur ekki tekist nema að litlu leyti.
Iþróttalega og félagslega höldum við
að deildin standi nokkuð vel og er
vissulega vel borgandi fyrir það.
Við viljum að lokum þakka ykk-
ur, góðu félagar, og þá sérstaklega
þeim, er stutt hafa okkur í starfi, þvi
það er nauðsynlegt fyrir stjóm á
hverjum tíma að hafa góða bak-
hjarla. Þá má alls ekki gleymast,
að þakka þjálfurunum á s.l. vetri
fyrir góð og óeigingjöm störf.
Að lokum þetta. Við vonum, að
stjórn sú er tekur við stjómartaum-
unrnn megi verða farsæl og vel studd
í starfi. Stöndum svo öll saman um
1. leikurinn var við lið blaðamanna — M.K. 31 27:17
2. leikurinn var við lið Vals — M.K. 31 19:20
3- leikurinn var við lið F.H. — M.K. 31 21:22
4. leikurinn var við úrval H.S.I. — M.K. 31 29:13