Valsblaðið - 24.12.1969, Side 35

Valsblaðið - 24.12.1969, Side 35
VALSBLAÐIÐ 33 VALSBLAÐIÐ 30 ÁRA Ritnefndin, sem skipiíb var 191)7, f. v. Einar Björnsson, Ölafur Sigur'Ssson og Frímann Helgason. mætir á æfingarnar og ég verð að segja það, að strákamir vilja læra eftir því sem maður segir þeim. Ég hef líka tekið upp sérstakar æfing- ar, áður en tekið er til við sjálfan leikinn, að slá knöttinn. — Ert þú ánægður með árangur- inn? — Miðað við æfingatímafjöldann verður ekki annað sagt en að vel megi við una, hitt er svo annað mál, að 1—2 æfingar í viku er of lítið, það sjá allir, en við því er víst ekk- ert að gera, aðstaðan leyfir ekki meira eins og er. Það er gaman að verða var við það, að strákarnir eru farnir að taka æfingarnar með mun meiri alvöru en fyrst og kemur þar til aukinn þroski og vilji til að bæta sig. Þess má líka geta, að nú orðið eru mun fleiri mót en áður á keppn- istímabilinu og þau örfa alltaf til æfinga og sjálf keppnin er að vissu leyti góður skóli og viðmiðun. Þróunin er líka sú í badminton, að það er krafizt meiri og meiri hraða í leiknum, en það krefst líka meiri og meiri æfinga. En sem sagt, ég legg áherzlu á að hlynna að unga fólkinu og gefa þvi sem flest tækifæri, sagði hinn áhuga- sami Rafn að lokum. F. H. Guúbjörn Jónsson lœtur nú af störf- wn sem þjálfari hjá Val. Þó honum hafi ekki tekist áS leiða flokkinn al- veg upp á toppinn, ver’Öur ekki ann- áS sagt en að hann hafi lagt sig allan fram. Eru honum þökkuð störfin, og margar ánægjulegar samverustund- ir í hressum og glöðum tón. Liðin eru 30 ár síðan Ólafur Sig- urðsson byrjaði á því að gefa út blað, sem skýra átti frá því sem var að gerast í félaginu, og þótti þetta merkilegt átak á þeim tímum og var kærkomið félagsmönnum, þó það væri ekki stórt í sniðum. Komu nokkur eintök á næstu ár- um, og munu þau ófáanleg. Um all- langt skeið slitnaði þetta í sundur nema hvað afmælisrit kom yfirleitt á fimm ára fresti, þar til snemma á árinu 1958 að aftur var hafizt handa um útgáfuna, og fyrstu árin komu nokkur blöð árlega, en hin síðari árin hefur verið gefið út eitt blað á ári, jólablað, og samandregið það sem gerzt hefur á vegum félagsins og stundum fleira tekið með til skemmtunar og fróðleiks. Stjórnin, sem kjörin var 1957, skipaði nefnd til að sjá um útgáfu blaðsins og voru í henni Ólafur Sig- urðsson, Einar Björnsson og Frímann Helgason, auk þess var Friðjón Guð- björnsson ráðinn sem fjármálamað- ur blaðsins. Það virðist sem blaðið eigi vax- andi vinsældum að fagna meðal fé- lagsmanna, bæði þeirra sem eru í starfi og eins hjá þeim, sem fylgj- ast með úr fjarska og hafa alltaf innst inni taug til félagsins. Við, sem stöndum í því að skrifa blaðið og sjá um útkomu þess vonum, að það hafi mikla félagslega þýðingu fyrir félagið, bæði innávið og útávið. Við höfum líka orðið mjög svo varir við góðvilja í garð félagsins og blaðsins meðal þeirra, sem hafa styrkt blaðið með auglýsingum. Þetta hefur gert okkur starfið mun léttara og ánægju- legra að verða var við þennan hug. Reynt hefur verið að láta skoð- anir og sjónarmið sem flestra félags- manna koma fram um þau málin, sem hæst ber á hverjum tíma, og spannar það yfir að kalla allt aldurs- skeið þeirra sem í félaginu eru, eða frá 5. flokki og það til öldunga, sem komnir eru nær áttræðu og allir hafa þeir sitt að segja um Val, þeir ungu um líðandi stund og framtíðina, en þeii' öldnu um liðinn tíma og þær ógleymanlegu minningar, sem við Val eru tengdar, og þann yl sem um þá fer, þegar félaginu vegnar vel. Blaðinu er sem sagt ætlað að tengja saman unga og gamla, nútíð og fortíð. Takist það getum við verið ánægð. Ritstjórnin.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.