Valsblaðið - 24.12.1969, Page 62

Valsblaðið - 24.12.1969, Page 62
VALSBLAÐIÐ 60 af mörkum danskra. Tóti kom með glæsilegan oddfána til leiksins, en var svo forsjáll að hampa honum ekki, þar eð MK hafði engan fána til skiptanna. Átti þessi hagsýni Tóta eftir að sanna ágæti sitt oftar i ferð- inni. Annar leikur okkar fór fram í Helsingborg i Svíþjóð. Andstæðingar okkar voru sænskt 1. deildarlið, Göta, frá Gautaborg. Urðu þeir nr. 6 í Alsvenskan í fyrra. Leikinn unn- um við með 19:18 og var sá sigur allt of lítill miðað við gang leiks- ins. Laugardaginn, 6. september, tók- um við þátt í hraðmóti í Helsingör. Lékum við fyrst við gestgjafa okkar MK 31. Lauk honum með jafntefli 11:11 eftir framlengdan leik. Skildi nú varpað hlutkesti um hvort liðið færi í úrslit og sýndu MK-menn gest- risni sína með því að gefa hlutkestið. Ekki verður skilizt við þennan leik öðru vísi en að geta um framlag Öla Jóns. Hann trakteraði Danina á 8 mörkum af þessum 11, sem við skoruðum. Td úrslita lékum við svo á móti Helsingör, sem urðu nr. 3 í I. deildinni í fyrra. Léku þeir frá- bærlega vel og þóttumst við góðir Fimm gláSir kappar eftir vel heppnaSa verzlunarferS hjá Regent Vesterbrogade, en f>ar þótti mönnum gott að verzla, það eru þeir Jón B, Stefán G, Jón Á, GeirarSur og Vignir. að halda í við þá lengi fram eftir leiknum. Lauk leiknum með sigri Helsingör 14:9. Markvörður Hels- ingör, Bent Mortensen II., varði stór- kostlega og er engri rýrð kastað á okkar ágætu markverði, þótt ég segi að Bent hafi verið „matchwinner“ Helsingör. A. m. k. þrívegis varði hann skot af miðri línu á ótrúlegan hátt. Eftir mótið og æðisgenginn akstur frá Helsingör til Hafnar (160 km. hraði!) hélt MK 31 okkur sam- sæti i félagsheimili þeirra. Svign- uðu borð þar undan „smörrebröd“ og reyndist Óli Dönum dýr sem fyrr. Þá átti Stefán Gunnarsson góðan leik og var yfirferð hans á brauð- fötunum með ólíkindum. Síðasti leikur okkar í ferðinni og jafnframt sá, sem var „aðalleikur“ fararinnar, var á móti sjálfum Dan- merkurmeisturunum, H.G. Lið þetta þarf varla að kynna. H.G. er talið með sterkustu liðum Evrópu og hef- ur innan sinna vébanda kempur eins og: Bent Mortensen I., Jörgen Ped- ersen, Carsten Lund, Palla Nielsen, Gert Andersen og marga fleiri. Hér gafst okkur tækifæri til að fá sam- anburð við það bezta í handknatt- leik álfunnar. Við vorum því stað- ráðnir í að leggja okkur alla fram, en þess ber að geta, að menn voru orðnir langþreyttir af húðarrápi og stífu keppnisprógrammi. Hins vegar vorum við orðnir samstilltari en við vorum í upphafi ferðarinnar og því gengum við óhræddir til leiks. Byrj- un leiksins var góð. Leikkerfi okkar gengu eins og vel smurð vél. Stað- an var 6:3 okkur í vil um miðbik hálfleiksins. H.G.-menn hafa senni- lega vanmetið okkur, því að nú tóku þeir af skarið og komust í 12:8, þeg- ar hálfleiknum lauk. Ekki var byrjun síðari hálfleiks efnileg. H.G. skoraði fyrstu 2 mörk- in og staðan var orðin 14:8. Nú fór allt að ganga betur hjá okkur. Á stuttum tíma komumst við í 14:15 og var sá leikkafli okkar bezti í ferð- inni. Gaman hefði verið að Reynir, þjálfari, hefði séð árangur erfiðis síns, en hann gat því miður ekki farið þessa ferð. H.G.-menn taka aft- ur sprett og komast í 22:16. Hélzt sá munur til leiksloka og endaði leik- urinn 27:20 fyrir H.G. Var frammi- staða okkar vel viðunanleg, þegar styrkleiki andstæðinganna er hafð- ur í huga. Má segja að allir hafi átt góðan leik og losaði Tóti sig loksins við oddfánann góða. Forráðamenn H.G. sögðu eftir leikinn, að við ætt- um jafngóðar skyttur og þeir, en nýttum þær ekki á réttan hátt. Fannst þeim vanta „blokkeringu“ hjá okkur, og reyndar öllum ísl. lið- um. V. Heimferð áttum við góða, með minningar, sem lifa ótrúlega lengi. Ekkert skyggði á ágæti þessarar far- ar. Við komum að vísu ekki heim með stóra sigra, en við komum heim sem LIÐ. Ég efast ekki um, að liðið sé betur undir átök húið eftir förina en áður. Eitt það ánægjulegasta við ferðina var samstilling liðsins bæði í leik og utan vallar. Tilgangur ferð- arinnar gleymdist aldrei, nema stutta stund í einu, og menn skemmtu sér af vísindalegri nákvæmni, minnug- ir þeirra átaka, sem framundan biðu. Ég vil að lokum þakka fyrir hönd okkar, strákanna, öllum, sem gerðu ferð þessa mögulega og vona að við verðum ekki dulspekilegt vandamál í framtíðinni. Pólsku meistararnir - Frh. af bls. 51. í aðra umferð keppninnar. Og aðr- ar sögðu það fyrir þá gert að sigra ekki í síðari leiknum með 7 marka mun. Allavega er frammistaða kvennaliðs okkar í þessari viðureign félaginu til mikils sóma og rétt einu sinni enn gátu Valsmenn verið stolt- ir af meistaraflokki kvenna í hand- knattleik. S.dór.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.