Valsblaðið - 24.12.1969, Page 80
78
VALSBLAÐIÐ
Geir Hallsleins-
son, ógnvaldur
markmanna
„hátt uppi“ og
vægSarlaus á
svipinn.
»
0
örn Clausen líSur mjúkt og leik-
andi yfir grindina, en viljinn og
krafturinn meitlaSur í hvern and-
litsdrátt.
sannar þetta. Hún nefnist „Fram
til orustu“. Þar segir frá íþrótta-
köppum, sem allir hafa gert garð-
inn frægan. Vakið á sér og þjóð sinni
almenna athygli á erlendum vett-
vangi.
Sögumaður þessara fræknu kappa
er Frimann Helgason, hinn þjóð-
kunni íþróttafrömuður, sem um ára-
bil var í röð okkar snjöllustu og beztu
knattspyrnumanna. En jafnframt
sem hann æfði og lék af kappi, lét
hann félagsmál íþróttahreyfingar-
innar mjög til sín taka, bæði í ræðu
og riti, sem íþróttablaðamaður um
áratugi, formaður í félagi sínu Val
um árabil og meðstjórnandi allsherj-
arsamtaka íþróttahreyfingarinnar,
ISl, í hálfan annan áratug. Manni
með slíka reynslu í félags- og íþrótta-
málefnum, ásamt þrautþjálfaðri rit-
leikni, vigður hinum sanna anda
íþróttanna, bæði utan vallar og inn-
an, í lífi og starfi, var sannarlega
öðrum fremur trúandi til þess að
senda frá sér einmitt slíka bók sem
þá, er hér um ræðir. Fjórmenning-
arnir nafnkunnu, söguhetjurnar,
íþróttagarparnir, sem hver um sig
störfuðu og starfa á því sviði íþrótt-
anna, sem þeim var og er hugstæð-
ast, ættu að verða fagurt fordæmi,
lýsandi tákn hins unga íþróttamanns
í dag. Höfundurinn hefur lagt sinn
skerf til þess, ásamt bókaútgáfu
Arnar og örlygs. Það er ekki þeirra
sök, höfundar og útgefanda, ef bók
þessi verður ekki aukin hvatning
ungu íþróttafólki.
Iþróttahetjur þær, sem hér er sagt
frá, eru: Jón Kaldal, einn stórkost-
legasti hlaupari, sem Island hefur
átt, örn Clausen, sem var í hópi
beztu tugþrautarmanna heims, Rík-
harður Jónsson, þróttmesti knatt-
spyrnumaður landsins á sínum tima
og talinn einn bezti innherji Norð-
urlanda og Geir Hallsteinsson hand-
knattleikssnillingur á heimsmæli-
kvarða, sem enn á eftir að gera garð-
inn frægan um árabil.
Frásögn Frímanns af þessum
miklu görpum er sannarlega for-
vitnileg öllum þeim, sem unna
drengskap og dáð. Litríkum mynd-
um er brugðið upp frá glæsilegum
íþróttaferli, svipmyndum, er glitra
sem djásn á spjöldum íþróttasögu
vorrar.
E. B.