Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Side 33
ALMANAK 1939
33
til 1911 að þeir skildu. Kristján fór til Kandahar,
Sask., og stundaði hann verzlun þar um tíma, síðan
var hann hveitikaupmaður, og nú í allmörg ár hefir
hann stundað trésmíðar bæði norður í Churchill og
í Winnipeg. Hann er giftur Finnu Margrétu Vig-
fúsdóttir Guðmundssonar prófasts á Melstað í Mið-
firði og Oddnýjar ólafsdóttir Jónssonar dannebrogs-
manns á Sveinsstöðum. Er hún systir S. W. Mel-
sted í Winnipeg og þeirra systkina.
Þau Kristján og Margrét eru myndarhjón. —
Heimili þeirra er í Winnipeg og er hið myndarleg-
asta. Son einn eiga þau, sem Jón Kristján heitir,
efnilegasti maður. Kristján tók þátt í almennum
félagsmálum þegar hann var í Glenboro, og skemti
oft með söng. Hann var söngmaður góður og
mikill snyrtimaður.
Torfi Steinsson. Foreldrar hans voru Steinn
prestur Torfason Steinsen er prestur var á Hjalta-
bakka í Húnavatnssýslu, Hvammi í Dalasýslu og
síðast að Árnesi í Strandasýslu. (Þegar hann fékk
köllun frá Árnesi fékk hann samtímis köllun frá
fslendingum í Dakota skrifaða af Jóni Brandsson,
föður Dr. B. J. Brandson í Winnipeg) og kona hans
Vilhelmína Katrín fædd Bjerring. Torfi var fæddur
á Hjaltabakka, kom til Vesturheims 1888, vann um
hríð við Lögberg, síðar vann hann hér og þar við
járnbrautarvinnu, skógarhögg og hvað sem gafst.
Til Argyle kom hann skömmu eftir 1890, settist
að hjá merkisbóndanum Jóni Hjálmarssyni og giftist
dóttir hans Kristínu Pálínu 1896. í Argyle bjó hann
til 1909, flutti þá til Glenboro, reisti þar vandað
hús og rak kolaverzlun stuttan tíma, en flutti nærri
strax til Kandahar, Sask., og setti á stofn verzlun í
félagi með mági sínum Kristján J. Hjálmarsson, og
var þar höfuðsmaður til 1920, þá seldi hann verzlun-
ina og gerðist aftur landbóndi, hann var þá í góðum