Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Page 45
ALMANAK 1939
45
Grímur Gíslason Eymann. Fæddur á Fjalli í
Sæmundarhlíð í Skagafjarðarsýslu 1861. Faðir
hans var Gísli Sigurðsson ættaður úr Blönduhlíð í
sömu sýslu. Móðir Gríms var Ingibjörg Guðmunds-
dóttir frá Vatnshlíð ekkja Gríms Jónssonar Norðan-
landspósts, Grímur var því hálfbróðir Margrétar
Grímsdóttir konu Magnúsar Jónssonar frá Fjalli og
hálfbróðir var hann Sigurbjörns Ástvaldar Gísla-
sonar guðfræðis kandidat í Reykjavík.
Hann ólst upp hjá móðir sinni, og kostaði hún
hann til menta í tvo vetur, lærði skrift, reikning,
Dönsku, sönglist og fl. 1881 giftist hann Helgu
Egilsdóttir Gottskálkssonar frá Skarðsá í Sæmund-
arhlíð, en flutti til V.heims 2 árum síðar. Var í
nokkur ár í Hallson, N. Dak., og stundaði verzlunar-
störf að mestu. Þaðan fór hann til Winnipeg, og
þar misti hann konu sína. Þá flutti hann til Glen-
boro. vann bændavinnu eitthvað fyrst en síðan við
verzlunarstörf í Glenboro og síðar um stund í
Cypress River, þar til hann flutti til Selkirk og þar
var hann það sem eftir var æfinnar, og vann við
verzlunarstörf lengst hjá kafteini Robinson. Hann
dó 19.jan.1937.
Grímur var maður allvel greindur og vel að sér
um marga hluti, hann er talinn af kunnugum a
hafa verið góður drengur og ábyggilegur, en sér-
kennilegur í skoðunum og seintekinn.
í Cypress River giftist hann í annað sinni
Jónínu Guðmundsdóttir Nordal, býr nú í Selkirk.
Börn áttu þau og eru þau uppkomin, hve mörg þau
eru, og um nöfn þeirra hefi eg ekki fengið upp-
lýsingar.
Kristján Benedicktson. Hann er ættaður af
Norðurlandi, hann var í Glenboro í nokkur ár, kom
hér stuttu fyrir aldamót og var hann hér sem verzl-