Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Page 75
ALMANAK 1939
75
þeirra allra er jafnan viðbrugðið og höfðingsskap í
hvívetna.
Árið 1922 misti Sigurj. önnu konu sína. Það
sama ár kom Pálína systir Önnu vestur um haf með
dótturson Sigurj. og Önnu, Óttar að nafni. Var þá
dóttir þeirra Margrét ný dáin frá mörgum ungum
börnum og hafði Sigurj. lagt drög fyrir að drengur-
inn kæmi vestur. Tók Pálína þá við búsforráðum með
frændum sínum. Árið 1926 urðu þeir bræður að
hætta búskap vegna vanheilsu Þorkels. Leigðu þeir
bræður út landeignina og fluttu til Winnipeg ásamt
Pálínu móðursystir sinni og Ottari frænda sínum
og höfðu þar á hendi flutninga. Nú hafa þeir á
hendi eldiviðarsölu í Winnipeg.
Gísli fór til íslands um 1929 ásamt Pálínu og
Ottari og keypti verzlun í Reykjavík og starfaði að
því nokkur ár með Ottari unz hann dó. Pálína er
dáin líka, en Gísli kominn til Winnipeg aftur.
Eftir að þeir bræður fluttu til Winnipeg, varð
Sigurjón eftir og ihafði heimili hjá systur og fóstur-
dóttur sinni ísfoldu og manni hennar Árna ólafs-
syni (sjá þátt Árna Ólafssonar) foreldrar hennar
voru Jósef Magnússon og Soffía systir Sigurjóns,
en heimsótti syni sína í Winnipeg með köflum, og
hjá Þorkeli andaðist hann 19. apríl 1934.
Með Sigurjóni er fallinn í valinn einn af máttar-
stólpum vors íslenzka kynþáttar í Vesturheimi. Hafði
hann afar víðþætta greind, skáldmæltur vel og djúp-
sæknari en fjöldi samtíðarmannanna, víðlesinn og
fróður um margt, enda unun að hlýða á hugmynda-
flug gamla mannsins og orðgnótt.
Nú leigir lönd Þorkels í bygðinni Óli Svein-
björnsson Björnssonar og bústýra hans Matthildur
Oddsdóttir (sjá ætt hans: bls. 91 í Almanaki 0. S.
Thorgeirssonar, 1935). Kona Óla er af norskum
ættum.