Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Page 85
ALMANAK 1939
85
búsett í grend við Elfros, Sask.; 6. Helgi, tvígiftur,
(konum af enskum ættum), búsettur í Alberta.
Jakob J. Líndal
Jakob fæddist í Miðhópi í Vesturhópi í Húna-
vatnssýslu 3. sept. 1883. Foreldrar hans voru þau
Jónatan Jónatansson Líndal og Ingibjörg Soffía
Benidiktsdóttir (sjá þátt Jónat. J. Líndal hér að
framan). Jakob fluttist með foreldrum sínum vest-
ur um haf árið 1887, er settust að í Garðar-bygð í
N. Dak. Hingað kom hann svo ásamt þeim árið
1899 og vann hjá þeim þar til 1906 (6. apríl) að
hann gekk að eiga Þórunni Guðlaugu ólafsdóttur
Kristjánssonar (sjá þátt Ólafs Kristjánsson).
Jakob byrjaði búskap á N.A. (4 S. 23, 1-6, leigði
það fyrst en keypti síðar. Þar bjuggu þau hjón
nokkur ár. Síðar seldi Jakob Helga Ólafssyni mági
sínum landið. Eftir það leigði hann lönd á ýmsum
stöðum í bygðinni þar til hann flutti til Sylvan,
Man., hvar hann hafði áður tekið heimilisréttarland,
og hefir búið þar síðan. Þau hjón eru dugleg í
búskapnum og félagslynd og var því eftirsjá fyrir
hina litlu bygð að sjá af kröftum þeirra. Æfinlega
skemtileg heim að sækja.
Börn þeirra hjóna á lífi eru: 1. Jónatan Beni-
dikt, giftist 23. sept. s. 1. Ruth Stanzel, af enskum
ættum, búsett í grend við Sharpewood, Man.; 2. Jó-
hann Valentin, ógiftur heima; 3. Ólafur Einar,
ógiftur heima; 4. Jósep Gústaf, ógiftur heima; 5.
Sigurður Júlíus, ógiftur heima; 6. Júlíana Sigfríður,
ógift heima. Fimm börn mistu þau hjón á unga
aldri.