Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Side 106
106 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
11. Guðrún Guðmundsdóttir Jónasson, að heimili sínu við
Vogar, Maa Fædd 16. júlí 1872 á Stefánsstöðum í
Skriðdal í S.-Múlasýslu. Foreldrar: Guð'mundur Finn-
bogason og Guðlaug Eiríksdóttir kona hans. Kom að
heiman 12 ára gömul með foreldrum sínum.
12. Olgeir ólafsson Austman, að Spy Hill, Sask., ættaður
af Mjóafirði á Austurlandi.
13. Dr. Björra B. Jónsson lézt að heimili sínu, 774 Victor St.,
Winnipeg. Fæddur að Asi í Kelduhverfi í N.-Múlasýslu
þann 19. dag júnímánaðar 1870. Foreldrar hans voru
Björn Jónsson, bróðir Kristjáns fjallaskálds og kona
hans Þorbjörg Björnsdóttir. Með þeim flutti hann
vestur hingað árið 1876.
14. Pauline Sophia Laxdal að East Lake, Colorado, eigin-
kona Jóns Laxdal, útlærð hjúkrunankona. Hún var
dóttir Guðbrands sál. Erlendssonar, sem lengi bjó í
grend við Hallson, N. D.
15. Albert C. Johnson, lézt að heimili sínu 414 Maryland
St., Winnipeg eftir langvarandi vanheilsu. Hann var
fæddur 2. nóv. 1866 á Akureyri við Eyjafjörð. Foreldrar
hans voru þau hjónin Jón Jónasson og Guðný Guð-
mundsdóttir. Fluttust hingað vestur 1886. Giftist
árið 1893. Heitir kona hans Elízabet Sigríður, dóttir
Sigurðar J. Jóhannessonar skálds.
15. Þórunn, kona Einars Einarssonar, Garðar, N. D., lézit
í Crystal, N. D. Hún var fædd í Nesjahjáleigu í Loð-
mundarfirði 10. júní 1857. Til Ameríku komu þau
hjónin 1902.
22. Guðrún Kristjana Sigurjónsdóttir Halldórsson, að
heimili Mr. og Mrs. Guðjón Johnson, Riverton, Man.
Hún var fædd að Kvisthóli á Tjörnesi í S.-Þingeyjars.
28. des. 1866. Foreldrar voru Sigurjón Halldórss'on og
Dorothea Jensdóttir Bukk, Kom hingað til lands ásamt
Björgu systur sinni árið 1914.
24. Ekkjan Guðfinna Agústa Bjarnadóttir Simpson, að
heimili sínu í Piney, Man. Fædd 1. ág. 1861 á Kross-
hjáleigu á Berufjarðarströnd í S.-Múlasýslu. Foreldrar:
Bjarni Magnússon og Guðfinna Bjarnadóttir. Giftist
Eiríki Sigfússyni 1898. Flutti vestur 1900.
25. Jóhann Davíðsson, að Leslie, Sask., eftir langa heilsu-
hilun. Hann var Eyfirðingur að ætt, sonur Davíðs á
Jódísarstöðum. Systlkini Jóhanns sál. enn á lífi eru þessi:
Rósa Nordal á Gimli; Eiríkur í Winnipegosis; Július í
Winnipeg og Bjarni í Leslie.